Skipulagsnefnd - 69. fundur
- 17.02.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 69
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíusson
1. Skipulagsnefnd: Samþykkt 2020
Lögð er fram tillaga að samþykkt fyrir skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar.
Skipulagsnefnd samþykkir samþykktina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.2. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Farið yfir vinnu við nýtt deiliskipulag norðan Hópsbrautar. Fyrstu drög að greinagerð lögð fram.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að koma á fundi með byggingarverktökum á svæðinu í byrjun mars.3. Deiliskipulagsbreyting í Svartsengi
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að framlengja auglýsingartíma á tillögu að breyttu deiliskipulagi í Svartsengi.
4. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og nýju deiliskipulagi fyrir Leiðarenda, helli í upplandi Hafnarfjarðar. Málið hefur áður komið til skipulagsnefndarinnar þann þegar mörkum Hafnarfjarðar var breytt í samræmi við úrskurð óbyggðarnefndar.
Sviðstjóra falið að vinna málið áfram.Linkur á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar https://www.hafnarfjordur.is/ibuar/skipulag/skipulag-i-kynningu/leidarendi-hellir-i-upplandi-hafnarfjardar
5. Aðalskipulag Ölfuss - Heildarendurskoðun
Skipulags- og matslýsing vegna endurskoðunar aðalskipulags Ölfuss 2010 - 2022 lögð fram til kynningar.
6. Fráveita Grindavíkurbæjar - hönnun og staðarval
Lagt fram til kynningar. Vinna við staðarval og frumhönnun á útrás og hreinsistöð fráveitukerfis Grindavíkurbæjar er í fullum gangi.
7. Stígur frá Grindavík vestur að gólfvelli
Lagðar eru fram til kynningar hugmyndir um legu á göngu- og hjólastíg frá Grindavík vestur að golfvelli.
8. Þórkötlustaðir - fyrirspurn um stækkun
Fyrirspurn um stækkun á Þórkötlustöðum (Vesturbær).Engin athugasemd barst við grenndarkynningu vegna fyrirspurnar. Málsaðila er bent á að sækja þarf um byggingarleyfi fyrir framkvæmdunum.
9. Fyrirspurn vegna stækkunar á núverandi hringvelli
Tillaga Brimfaxa að stækkun reiðvallarins fer inn á fyrirhugaðan tengiveg við Suðurstrandarveg lögð fram. Finna þarf aðra staðsetningu fyrir löglegan reiðvöll. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
10. Svæði til skógæktar í Grindavík
Rætt um hvaða svæði væru ákjósanlegust til skógræktar við Grindavík.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram með Skógræktarfélagi Grindavíkur.