Samfélagsnefnd - 10. fundur
- 09.03.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 10
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirformaður
- Eva Lind Matthíasdóttirvaraformaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Frumkvæðisathugun - Eftirlit með fóstri
Nefndinni er gerð grein fyrir erindi Gæða- og efirlitsstofnunar er varðar frumkvæðisathugun stofnunarinnar á eftirliti barnaverndarþjónustu með fósturbörnum.
2. Samstarfssamningar á frístunda- og menningarsviði 2026
Lagðir eru fram samstarfssamningar á frístunda- og menningarsviði vegna ársins 2026. Nefndin vísar samningunum til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði.
3. Skólahald í Grindavík - Haust 2026
Ferli vegna ráðningar nýs skólastjóra samrekins leik- og grunnskóla kynnt fyrir nefndinni.
4. Dagmæður - húsnæði í eigu bæjarins
Sviðsstjóra falið leggja fram endanleg drög að leigusamningi á næsta fundi nefndarinnar.
5. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar 2026
Varðandi gjaldskrá leikakóla er lagt til að horft verði til sama gjalds og var í gildi árið 2024. Jafnframt lagt til að horft verði til nýrrar nálgunar á gjaldskrá leikskóla í fjárhagsáætlun 2027.
6. Heiðursveggur íþróttafólks í Grindavík
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.