Samfélagsnefnd - 17. fundur
- 18.11.2026
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 17
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Valgerður Jennýjardóttirformaður
- Valgerður Ágústsdóttirvaraformaður
- Eva Lind Matthíasdóttiraðalmaður
- Jón Breki Einarssonaðalmaður
- Björn Steinar Brynjólfssonaðalmaður
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Reglur um fjárhagsaðstoð - Uppfærsla
Drög að nýjum reglum um fjárhagsaðstoð lögð fyrir nefndina. Drögin verða uppfærð í samræmi við umræður fundarins og lagðar fyrir nefndina að nýju. Jafnframt leggur nefndin til að framfærslukvarðinn vegna ársins 2027 verði kr. 205.000.
2. Reglur um styrki vegna íþróttaafreka
Farið yfir gildandi reglur Grindavíkurbæjar um styrki vegna íþróttaafreka frá 10. september 2019. Nefndin leggur til að reglurnar verði endurskoðaðar og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs í samræmi við umræður á fundinum að hefja þá vinnu.
3. Skráningardagar í leikskóla
Samfélagsnefnd upplýst um fyrirkomulag skráningardaga í leikskóla.
4. Íþróttafólk Grindavíkur 2026
Fyrirkomulag kjörs og útnefning á íþróttafólki ársins rætt. Sviðsstjóra farið að vinna málið áfram.