Samfélagsnefnd - 16. fundur
- 21.10.2026
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 16
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Valgerður Jennýjardóttirformaður
- Valgerður Ágústsdóttirvaraformaður
- Eva Lind Matthíasdóttiraðalmaður
- Jón Breki Einarssonaðalmaður
- Björn Steinar Brynjólfssonaðalmaður
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Samstarfssamingur Grindavíkurbæjar og Samtakanna ''78
Drög að samstarfssamningi á milli Grindavíkurbæjar og Samtakanna ´78 lögð fram. Nefndin óskar eftir fundi með Samtökunum ´78 samhliða næsta fundi nefndarinnar.
2. Áætlun um frístundastarf fyrir börn og ungmenni í Grindavík
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs reifar stöðu málsins fyrir nefndinni m.a. ráðningu forstöðumanns frístundamála í 100% starf frá og með áramótum.
3. Leiguíbúðir aldraðra
Umsókn um íbúð við Austurveg nr. 5 liggur frammi. Umsækjandi uppfylli aldursviðmið reglnanna og bjó samfellt í Grindavík um áratugaskeið fyrir rýmingu. Samfélagsnefnd samþykkir að úthluta viðkomandi umsækjanda íbúðina.