Samfélagsnefnd - 6. fundur
- 24.03.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 6
- Ritari: Nökkvi Már Jónsson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirformaður
- Eva Lind Matthíasdóttirvaraformaður
- Snædís Ósk Guðjónsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Stefanía Sigríður Jónsdóttir situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Samfélagsnefnd var gerð grein fyrir ástandi og stöðu félagslegs leiguhúsnæðis í sveitarfélaginu sem og íbúðum sveitarfélagsins við Austurveg 5.
2. Fjárhagsaðstoð
Sótt er um fjárhagsaðstoð til að mæta kostnaði vegna líkamsræktar. Samfélagsnefnd samþykkir umsókn að fjárhæð kr. 31.990.
3. Sjóarinn síkáti 2025
Hátíðahöld í tilefni af sjómannadeginum munu fara fram í Grindavík 1. júní nk. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að vinna málið áfram.
4. Góðan daginn Grindvíkingur - Hlaðvarp Grindavíkurbæjar
Hlaðvarpið „Góðan daginn Grindvíkingur“ kynnt og lagðar fram upplýsingar um framkvæmd- og fjármögnun þess.
5. Sértækur húsnæðisstuðningur
Sértækur húsnæðisstuðningur fellur niður í lok mars mánaðar. Við tekur almennur húsnæðisstuðningur HMS og eftir atvikum sérstakur húsnæðisstuðningur sveitarfélaga. Þá er upplýst að þjónustuteymi verði falið að styðja við afmarkaðan hóp sem er í sérstaklega viðkvæmri stöðu í þessu tilliti til næstu áramóta.