Samfélagsnefnd - 3. fundur
- 11.12.2024
- Fundargerð
- Kl. 13:00 - 14:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 3
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirformaður
- Eva Lind Matthíasdóttirvaraformaður
- Snædís Ósk Guðjónsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Íþróttafólk Grindavíkur 2024
Rætt um kjör á íþróttafólki Grindavíkur 2024.
Samfélagsnefnd óskar eftir samtali við aðalstjórn UMFG með hvaða hætti verði staðið að vali á íþróttafólki Grindavíkur í ár.2. Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2025
Rætt um starfsstyrki á frístunda- og menningarviði 2025.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að vinna málið áfram.3. Söfnun heimilda um sögu Grindavíkur
Rætt um söfnun heimilda um sögu Grindavíkur.
Samfélagsnefnd telur mikilvægt að halda vel utan um sögu Grindavíkur með áherslu á undanfarin ár.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.4. Barnaverndarþjónusta - Undanþága
Umsókn um undanþágu til mennta- og barnamálaráðuneytisins um rekstur barnaverndarþjónustu lögð fram.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs falið að leita eftir samvinnu við önnur sveitarfélög um rekstur þjónustunnar verði umsókninni synjað.5. Víðihlíð - Nýting íbúða
Rætt um nýtingu íbúða í Víðihlíð ásamt þjónustu þeim tengdum.
Samfélagsnefnd felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.