Innviðanefnd - 16. fundur
- 20.04.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 16
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirvaraformaður
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Guðjón BragasonLögfræðingur
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Grindavíkurnefnd - skýrsla um endurreisn Grindavíkur
Helstu tillögur í skýrslu Grindavíkurnefndar um endurreisn Grindavíkur sem varða innviði, skipulagsmál o.fl lagðar fram.
2. Mat á vernd húsa vegna umsókna um niðurrif
Sigurður Rúnar Karlsson, sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Framundan eru örútboð vegna niðurrifs altjónshúsa. Lagður er fram listi um hús sem verða í næstu örútboðum.
Þau eru: Víkurbraut 38, Víkurbraut 40, Víkurbraut 48 og Víkurbraut 50. Á fundinum var einnig farið yfir áform um niðurrif á Víkurbraut 19 og Hópi 1.
Óskað er eftir afstöðu innviðanefndar um hvort mat á verndargildi framangreindra húsa standi í vegi fyrir niðurrifi.
Bókun: Innviðanefnd gerir ekki athugasemdir við áform um niðurrif mannvirkja við Víkurbraut 19, Víkurbraut 38, Víkurbraut 40, Víkurbraut 48, Víkurbraut 50 og Hóp 1.3. Norðurljósavegur 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eldvörp ehf. sækja um byggingarleyfi fyrir nýtt töskugeymsluhús við Norðurljósaveg 9 á nýju bílaplani við baðstað Bláa Lónsins innan við varnargarða.
Bókun: Innviðanefnd staðfestir að fyrirhuguð áform séu samkvæmt skipulagi og vísar erindinu til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.4. Akkerisból fyrir útskipun laxaseiða í Arfadalsvík
Kynning lögð fram á framkvæmdum við Samherja Fiskeldi á Stað þar sem til stendur að útbúa akkerislægi fyrir brunnbáta úti á Arfadalsvík. Tilgangur verkefnisins er að leggja lagnir út á víkina sem flytja laxaseiði frá landeldinu um borð í skip sem festa sig við baujur sem eru festar með keðjum og taugum við 10 tonna akkeri sem verða 10 talsins. Lagnaleiðin liggur samhliða útrásinni að fjöruborðinu.
5. Afmörkun hafnasvæða
Leiðbeiningar um afmörkun hafnarsvæða frá innviðaráðuneytinu lagðar fram. Hafnarstjóra falið að vinna málið áfram.
6. Ósk um leigu á hafsögubát
Óskað hefur verið eftir að fá hafnsögubát Grindavíkurhafnar á leigu í sumar í tvo mánuði.
Bókun: Innviðanefnd gerir ekki athugasemd við útleiguna og felur hafnarstjóra að ljúka málinu.7. Tilfærsla á Löndunarkrana
Rætt um möguleika þess að færa löndunarkrana nr. 4 sem staðsettur er á Kvíabryggju yfir á Miðgarð og kosti þess að hafa flotbryggju við bryggjuna.
Bókun: Hafnarstjóra falið að vinna málið áfram.8. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 95
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 95 lögð fram.