Innviðanefnd - 18. fundur
- 29.06.2026
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 18
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Dagmar Valsdóttirvaramaður
- Þorleifur Ólafssonaðalmaður
- Benedikt Óskar Steingrímssonaðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Starfsáætlun - Innviðasvið
Kynning á stöðu málefna og verkefna undir starfssviði innviðanefndar lögð fram.
2. Uppbygging áfangastaðar í Hópinu - hugmyndir
Fulltrúar Norðurdals ehf. mættu til fundarins undir dagskrárliðnum og kynntu hugmyndir um mögulega uppbyggingu áfangastaðar í Hópinu.
Innviðanefnd þakkar fyrir kynninguna og hvetur bæjarráð til að hraða ákvörðunartöku varðandi framtíð Hópsins.3. Aðalskipulag Grindavíkurbæjar - endurskoðun
Bæjarráð Grindavíkurbæjar hefur falið skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra að hefja undirbúning á endurskoðun aðalskipulags Grindavíkurbæjar.
Málið lagt fram til kynningar.4. Deiliskipulagsbreyting - vegtenging við Efrahóp og Arnarhlíð
Guðmundur Pálsson vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Athugasemdafrestur við grenndarkynningu vegna breytingar á vegtengingu við Efrahóp og Arnarhlíð lýkur 30. júní. Tvær athugasemdir og ein fyrirspurn hafa þegar borist og eru lagðar fram til umfjöllunar í innviðanefnd.
Innviðanefnd tekur tilliti til þeirra athugasemda sem bárust og samþykkir að breyta fyrirhugaðri vegtengingu yfir í tillögu 2 þannig að farið verði um Álftahlíð og beint inn í efri botnlanga Efrahóps með fyrirvara um að ekki berist athugasemdir við grenndarkynningu á uppfærðri skipulagstillögu.
Erindinu er vísað til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu að lokinni grenndarkynningu.5. Breyting á lóðum: Víkurhóp 16 og 18.
Breyting á lóðarskipulagi í Víkurhópi lögð fram í tengslum við niðurrif á Víkurhópi 20. Lóðin við Víkurhóp 20 fellur út og lóð Víkurhóps 18 stækkar til austurs um 3 metrar.
Innviðanefnd samþykkir breytinguna með fyrirvara um samþykki fasteignafélagsins Þórkötlu sem er þinglýstur eigandi umræddra fasteigna. Nefndin telur breytinguna óverulega í skilningi 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingin hefur ekki áhrif á hagsmuni nágranna og er fallið frá grenndarkynningu.6. Fyrirspurn - endurheimt skóga í landi Grindavíkur
Fyrirspurn frá Pálmari Guðmundssyni lögð fram vegna endurheimtar skóga í landi Grindavíkur.
Innviðanefnd vísar erindinu til vinnu við endurskoðunar aðalskipulags Grindavíkurbæjar og verður fulltrúa Skógræktarfélags Grindavíkur boðið á fund nefndarinnar í því sambandi.7. Icefish sjávarútvegssýning september 2026
Sigurður Kristmundsson, hafnarstjóri, fór yfir mögulega þátttöku hafnarinnar ásamt fyrirtækjum í Grindavík á Icefish september 2026.
Hafnarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarráð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.8. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 96
Fundargerð fundar afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 96 lögð fram.