Innviðanefnd - 4. fundur
- 15.01.2025
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 4
- Ritari: Sigurður A. Kristmundsson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirvaraformaður
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Elísabet Bjarnadóttirsérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Endurskoðun aðalskipulags 2024
Til umfjöllunar: Vinnuhópur við gerð hættukorts.
Til þess að endurskoðun aðalskipulags geti átt sér stað, þarf að setja á fót vinnuhóp til að gera hættukort fyrir byggðina. Í þeim hópi þurfa að vera sérfræðingar af viðeigandi sviðum. Leitað var ráða hjá Skipulagsstofnun og Veðurstofu Íslands. Sem aðalsérfræðingar mælti VÍ með ÍSOR enda þeir unnið að jarðkönnun á svæðinu síðastliðið ár og mánuði.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.2. Gjaldskrá Grindavíkurhafnar 2025
Tillaga að þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2025
Hafnarstjóri leggur til 5% hækkun á þjónustugjöld hafnarinnar fyrir árið 2025. Aflagjöld haldast óbreytt fyrir sama tímabil. Innviðanefnd samþykkir tillögu hafnastjóra og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.3. Umsókn um framkvæmdaleyfi
Landsnet sækir um framkvæmdaleyfi fyrir breytingu á Svartsengislínu 1, sem felur í sér að reisa nýja stálmastralínu austan við núverandi leið yfir hraun, alls um 2,3 km., sbr. nánari lýsingu í umsókn um framkvæmdaleyfi ásamt fylgigögnum með umsókn.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að bregðast við yfirvofandi náttúruvá og verja mikilvæga innviði gegn hraunrennsli. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2018-2032.
Fyrir liggur undanþága frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, dags. 13. janúar 2025, frá málsmeðferð samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, sbr. 1. mgr. 29. gr. laganna. Skiplagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfisins og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfið þegar samþykki landeiganda liggur fyrir. Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.