Innviðanefnd - 15. fundur
- 23.03.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 15
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirvaraformaður
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Svæðisskipulag Suðurnesja - Tillaga
Á 57. fundi svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja var svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040, sem samanstendur af skipulagsgreinargerð, umhverfismatsskýrslu og vatnsverndaruppdrætti, samþykkt í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fyrir liggur samantekt umsagna/athugasemda og viðbrögð við þeim.
Er skipulagstillagan lögð fram til samþykktar af hálfu Grindavíkurbæjar í samræmi við 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Innviðanefnd samþykkir skipulagstillöguna og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð fundar svæðisskipulagsnefndar nr. 57 jafnframt lögð fram til kynningar.2. Ósk um að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi vegna aðkomuleiðar að Efrahópi
Breytingaruppdráttur vegna óverulegrar deiliskipulagsbreytingar í Hlíðarhverfi vegna nýrra aðkomuleiða að Efrahópi í kjölfar náttúruhamfara í Grindavík lagður fram.
Innviðanefnd samþykkir að grenndarkynna framlagða óverulega deiliskipulagsbreytingu fyrir öllum lóðarhöfum og forkaupsréttarhöfum við Efrahóp og Arnarhlíð. Jafnframt verður skipulagsbreytingin auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins.3. Mat á vernd húsa vegna umsókna um niðurrif
Sigurður Karlsosn sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Framundan eru örútboð vegna niðurrifs altjónshúsa. Lagður er fram listi um hús sem verða í næstu örútboðum. Þau eru við Víkurhóp 2-4 og Víkurhóp 6-8.
Innviðanefnd gerir ekki athugasemdir við áform um niðurrif mannvirkja í Víkurhópi 2-4 og Víkurhópi 6-8.
Þá fór Sigurður Karlsson yfir stöðu niðurrifsverkefna og sprunguviðgerða sem eru hafin eða í þann veg að hefjist. Rætt um hvaða breytinummá vænta á ásýnd bæjarins og framkvæmdum loknum.4. Gangstéttir viðgerðit, Ránargata og Austurveg
Sigurður Karlsson sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Tillaga að viðgerðum á gönguleið við Landsbankann og yfir að íþróttahúsi lögð fram ásamt staðsetningu umferðaljósa og gangbrauta.
Innviðanefnd samþykkir tillögurnar.5. Fyrirspun um uppbyggingu við golfvöllinn í Grindavík
Fyrirspurn frá Golfklúbb Grindavíkur um uppbyggingu á vélargeymslu og starfsmannaaðstöðu lögð fram. Fyrirhuguð staðsetning er á eldra æfingasvæði golfklúbbsins meðfram Nesvegi.
Innviðanefnd fagnar því að golfklúbbur Grindavíkur sé að huga að frekari uppbyggingu. Innviðanefnd bendir á að ekki sé í gildi deiliskipulag fyrir svæðið en í 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er veitt heimild til að leyfa án deiliskipulagsgerðar byggingar- eða framkvæmdaleyfi ef áformin eru i samræmi við landnotkun, byggðarmynstur og þéttleik byggðar. Skal þá láta fara fram grenndarkynningu.
Innviðanefnd bendir því golfklúbb Grindavíkur á að sækja um byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni með fullnægjandi gögnum sem hægt væri að grenndarkynna samkvæmt gildandi skipulagslögum.
Innviðanefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram með golfklúbbnum.6. Almyrkvi á sólu 2026
Arnar Steinn Elísson verkefnastjóri almennavarna hjá lögreglunni á Suðurnesjum sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Rætt um stöðu mála vegna almyrkva á sólu 2026 og beiðnir sem komið hafa í tengslum við hann. Fundargerð stýrihóps um almyrkva á Reykjanesi lögð fram.
Innviðanefnd þakkar Arnari Steini fyrir góða upplýsingagjöf varðandi almyrkvann.7. Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga
Innviðaráðuneytið óskar eftir ábendingum og úrbótatillögum um verkefni og regluverk sveitarfélaga. Greina á hvort og þá hvar lagðar eru óþarfar eða íþyngjandi kvaðir á sveitarfélög og/eða einstaklinga, fyrirtæki eða félagasamtök sem leita þurfa til sveitarfélaga í störfum sínum eða einkalífi. Ekki er spurt um reglur sem sveitarfélögin setja sér sjálf um framkvæmd verkefnanna.
Drög að umsögn Grindavíkurbæjar voru lögð fram til umræðu og tekur innviðanefnd undir áherslur í umsögninni. Samþykkt var svohljóðandi bókun.
Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar á yfirborði lands innan Grindavíkurbæjar, vegna jarðhræringa, eldgosa og hraunrennslis. Hraun hafa runnið yfir landsvæði og eyðilagt innviði eða gert þá óaðgengilega. Skemmdir hafa orðið á flutningskerfi rafmagns, þjónustuvegum veitna og lögnum fyrir neysluvatn og hitaveitu. Það þarf að vera hafið yfir allan vafa að rekstraraðilar innviða hafi rétt til þess að komast að þessum innviðum og sinna viðgerðum og endurbótum og skiptir öllu máli að hægt sé að hefja viðgerðir tafarlaust. Hafa þarf í huga að lagnabelti og veitumannvirki hafa farið í gegnum skipulagsferli og liggja fyrir öll tilskilin leyfi fyrir byggingu þeirra. Taka þarf af tvímæli um það með lagabreytingu að 61. gr. náttúruverndarlaga eigi ekki við þegar hraun fer yfir lykil innviði eins og veitumannvirki eða vegi.8. Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks
Áformað er að breyta raforkulögum á þann veg að heimildir sérleyfisfyrirtækja (Landsnets og dreifiveitna) verði samræmdar heimildum fjarskiptafyrirtækja samkvæmt lögum um fjarskipti, sem kveður á um að landeiganda sé skylt að þola lagningu flutningsvirkja og mannvirkja ef nauðsyn krefur, gegn fullum bótum fyrir sannanlegt tjón.
Innviðanefnd vísar til bókunar við 7. lið undir máli nr. 2603054.9. Dreifing búfjáráburðar til uppgræðslu á svæði milli varnargarða
Umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja um dreifingu búfjáráburðar til uppgræðslu milli varnargarða liggur fyrir.
Innviðanefnd hefur farið yfir þær upplýsingar sem komu frá Hestamannafélaginu Brimfaxa og umsögn HES og gerir nefndin ekki athugasemdir við það að heimila umsækjanda að dreifa búfjáráburði til uppgræðslu á svæði milli varnargarða. Innviðanefnd leggur til að fyrirkomulagið verði endurskoðað á ári hverju.
Skipulagsfulltrúa falið að senda umsögn HES á Brimfaxa enda eru þar fyrirmæli og viðmið sem þeim ber að fara eftir við uppgræðslu.
Innviðanefnd vísar erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórn.10. Orkuvinnsla í Eldvörpum - Umsókn um skipulagsbreytingar
Lagt fram til kynningar álit Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um matsáætlun vegna áforma um orkuvinnslu í Eldvörpum.
11. Fundargerðir 2026 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 56. fundar Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja sem fram fór þann 26.02.2026 lögð fram til kynningar.