Innviðanefnd - 17. fundur
- 12.05.2026
- Fundargerð
- Kl. 12:00 - 13:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 17
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirvaraformaður
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Guðjón BragasonLögfræðingur
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Mat á vernd húsa vegna umsókna um niðurrif
Sigurður Rúnar Karlsson, sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Fram undan eru örútboð vegna niðurrifs altjónshúsa.
Óskað er eftir afstöðu innviðanefndar um hvort verndargildi verndargildi eftirfarandi húsa standi í vegi fyrir niðurrifi.
1. Garður við Verbraut
2. Víkurbraut 34
Bókun: Innviðanefnd gerir ekki athugasemdir við áform um niðurrif Garðs við Verbraut og Víkurbraut 34.2. Aðalskipulagsbreyting vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi
Lögð er fram uppfærð tillaga um óverulega aðalskipulagsbreytingu vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi. Tillagan er lögð fram aftur í kjölfar viðbragða HMS og fundar með HMS 7. maí sl.
Bókun: Tillagan hefur verið uppfærð eftir viðbrögð HMS. Innviðanefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og samþykkir að farið verði með skipulagstillöguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Erindinu er vísað til staðfestingar og fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.3. Orkuvinnsla í Eldvörpum - Umsókn um skipulagsbreytingar
Umsagnir við skipulagslýsingu lagðar fram ásamt uppfærðum vinnslutillögum aðalskipulagsbreytingar og nýs deiliskipulags fyrir iðnaðarsvæði i4 í Eldvörpum.
Aðalskipulagsbreytingin fjallar m.a. um eftirfarandi atriði:
- Afmörkun á stækkun á iðnaðarsvæði i4 fyrir nýtt niðurdælingasvæði á sveitarfélagauppdrætti
- Afmörkun lagnabeltis á milli orkuvinnslusvæða og Svartsengisvirkjunar
- Breytingar á skilmálum um stærð borteiga
- Auknar heimildir fyrir Svartsengisvirkjun úr 74,4 MW í 110 MW.
Í tillögu að nýju deiliskipulagi eru m.a. skilgreind svæði fyrir borteiga, niðurdælingu, mannvirkjabelti ásamt því að settir eru fram skilmálar um framkvæmd, útfærslu, aðkomu og frágang. Með skipulaginu er leitast við að lágmarka rask á landi og tryggja að uppbygging taki mið að verndargildi svæðisins.
Innviðanefnd leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að kynna skipulagstilögurnar. Erindinu er vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.4. Sjónarhóll - umsókn um gististað
Sótt er um leyfi til að hafa gistingu í flokki II, tegund C á Sjónarhóli.
Sjónarhóll er innan íbúðarsvæðis sem er merkt IB12 í gildandi aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032. Í greinargerð aðalskipulags Grindavíkur 2018-2032 segir m.a í kafla 2.1.1 eftirfarandi:
„...Umsóknir um nýja gististaði í flokki II, tegund c innan íbúðarbyggðar skal skipulagsnefnd sérstaklega fjalla um og skal leyfi til reksturs vera háð ákvörðun nefndarinnar. Við mat á umsókn skal skipulagsnefnd líta til þess að kröfur um bílastæði séu uppfylltar, horfa skal til staðsetningar innan íbúðarbyggðar og aðkomu. Umsóknir sem þessar skulu ávallt grenndarkynntar fyrir nágrönnum....“.
Innviðanefnd telur að ekki séu til staðar grenndarhagsmunir vegna fyrirspurnar og gerir nefndin ekki athugasemdir við að á Sjónarhóli verði heimiluð gisting í flokki II, tegund C. Mikilvægt er að á teikningum til byggingarfulltrúa verði gert skilmerkilega grein fyrir bílastæðum, brunakröfum o.fl.5. Bílastæði við frystihús Vísis við Miðgarð
Lögð fram tillaga frá Vísi ehf. um bílastæði við frystihús við Miðgarð til upplýsinga fyrir innviðanefnd.
Innviðanefnd tekur jákvætt í tillöguna og telur hana stuðla að auknu umferðaröryggi á svæðinu hvort sem er fyrir gangandi eða akandi umferð. Hafnarstjóra er falið að vinna málið áfram í samráði við Vísi.