Hafnarstjórn Grindavíkur - 473. fundur
- 14.09.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:15
- Seljabót 2
- Fundur nr. 473
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Hallfreður G Bjarnasonaðalmaður
- Bergþóra Gísladóttiraðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Eyjabakki deiliskipulag
Hafnarstjórn leggur til breytingar sem áður hafa komið fram og sjá má í drögum sem sendar verða til sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
2. Mögulegt samstarf um rekstur hafna á Suðurnesjum
Hafnarstjórn tekur vel í alla viðleytni til að þess að hagræða í rekstri hafnarinnar og að leitað sé leiða og tækifæra til auka umsvif hennar með hagsmuni eigenda og viðskiptavina hennar í fyrirrúmi.
3. skemmdir í þekju á Suðurgarði
Staða verkefnis: Hafnastjóra var falið að óska eftir stuðningi Vegagerðarinnar að viðgerð þekjunnar. Vel var tekið í erindið á fundi með Vegagerðinni þ. 10. september. Forstöðumaður framkvæmdasviðs vegagerðarinnar mun fara yfir málið og vænta má niðurstöðu fljótlega um aðkomu ríkissins að verkinu.
4. Staða eignfærðra fjárfestinga árið 2020
Farið yfir stöðu eignfærðra fjárfestinga árið 2020
5. Innsiglingabauja í ytri rennu
lagt fram
6. Sjávarflóð og óveður 14.febrúar 2020
Hafnarstjórn leggur á það ríka áherslu að viðgerð á sjóvörnum fari fram sem allra first.