Hafnarstjórn Grindavíkur - 466. fundur
- 08.04.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:40
- Seljabót 2
- Fundur nr. 466
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Sævar B Þórarinssonvaramaður
Páll J. Pálsson var staddur erlendis og var haft samband við hann símleiðis og fundagerðin borin undir hann
1. Tilboð í flotbryggju
Hafnarstjórn þakkar fyrir tilboðið en telur ekki tilefni til þess að fjölga flotbryggjum að svo stöddu.
2. Vigtarmál Grindavíkurhöfn
Hafnarstjóri fór yfir vigtarmál og aflaskráningaferla hjá höfninni.
3. Sjávarflóð í Grindavík
Töluvert tjón varð á ýmsum rafmagnsbúnaði hafnarinnar s.s rafmagnstöflum og raftenglum. Skipta þurfti um rafmagnsmótor í löndunarkrana. Skarð kom í sjóvarnagarð í Hópsnesi o.m.fl. Enn er ekki búið að laga allt sem sjávarflóðið olli. Fulltrúi vegagerðarinnar kom til þess að leggja mat á þær sjóvarnir sem bregðast þarf við sem fyrst og mun skarðið á sjóvarnagaðinum verða lagfært í sumar. Náttúrhamfaratrygging Íslands bætir tjónið að einhverju leyti. Líklegt er að hafnarsjóður þurfi að sækja um viðauka á fjárhagsáætlun 2019 á kostnaði umfram það sem náttúrhamfarasjóðurinn bætir.
Hafnarstjórn leggur til að hafnar,- og skipulags- og byggingasvið sjá sameignlega um útektir á sjóvörun í landi Grindavíkur og skili árlega skýrslu til vegagerðarinnar um með tillögum um hvar og með hvaða forgagni styrkja þurfi sjóvarnir.
4. Öldu- og veðurspár
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að óska eftir fundi með Siglingasviði vegagerðarinnar. Hafnarstjórn telur mikið hagsmunamál að ölduspár á grunnslóð utan Grindavíkur verði eins nákvæmar og unnt er. Með nákvæm og tiltölulega áræðanleg gögn fyrir framan sig fækkar þeim skiptum sem skipstjórar ákveða að óþörfu að sigla til annara hafna.
5. Miðgarður: Þekja, lagnir og raforkuvirki
Styttist í verklok, verktaki mun slípa niður misfellur í þekju. Næstu tvær vikur er áætlað unnið verði að því að koma stofnlögnum í jörð fyrir rafmagns- og vatnsveitu bryggjunar.