Hafnarstjórn Grindavíkur - 488. fundur
- 13.02.2023
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 488
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Anna Elísa Karlsdóttir Longaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Sverrir Auðunssonvaramaður
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
1. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2023
lagt fram
2. Grindavík Frumathugun nýir garðar
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að taka saman alla mögulega verkþætti sem snúa að undirbúningi við gerð nýs brimvarnagarðs fyrir ytri innsiglingu og þær hafnabætur sem felast í breikkun og dýpkun í ytri og innri innsiglingu til hafnarinnar, ásamt því að skila inn tímalínu fyrrnefndra verkþátta.
3. Skipulagsgreining Grindavíkurhöfn
Farið yfir stöðu mála
4. Verklýsing viðgerð Suðurgarður
Verkefnið er til skoðunar hjá verkfræðingi Vegagerðarinnar.
5. Öryggismál á hafnarsvæði 2022
Öryggismerkingar eru klárar. Fyrir liggur að setja þær upp við helstu aðkomuleiðir á hafnasvæðið.