Hafnarstjórn Grindavíkur - 479. fundur
- 24.11.2021
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 479
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Hallfreður G Bjarnasonaðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Páll Valur Björnssonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Helgi G. Gunnarsson frá Vegagerðinni og Fannar Jónasson bæjarstjóri verða viðstaddir fyrsta dagskrárlið. Atli Geir Júlíusson sviðstjóri skipulags- og umhverfissvið verður viðstaddur fyrsta og annan dagskrárlið.
1. Grindavík 2021 - Frumathugun á ytri skjólgörðum og breikkaðri innsiglingarrennu
Fannar Jónasson bæjarstjóri, Atli Geir Júlíusson sviðstjóri skipulags- og umhverfissiðs og Helgi G. Gunnarsson verkfræðingur frá Vegagerðinni sátu fundinn undir þessum lið. Helgi skýrði frá ýmsum athugnum sem hann hefur unnið að, sem snúa að því að skoða ýmsar útfærslur á því hvaða áhrif mögulegar breytingar á breikkun/dýpkun ytri og innri innsiglingarrennu ásamt hugsanlegum brimvarnagörðum til að mynda skjól fyrir skip á leið í innsiglingu til eða frá höfn.
Hafnarstjórn þakkar Helga og Siglingasviði fyrir frumdrög að áhugaverðum hafnabótum og felur hafnarstjóra að óska eftir frekari útfærslum.2. Breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins við Eyjabakka
Atli Geir Júlíusson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti framtíðaruppbyggingu deiliskipulags við Eyjabakka. Hafnarstjórn gerir engar athugasemdir.
3. Umsókn um endurnýjun og stækkun á eldsneytistanki við smábátabryggju
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við þessa umsókn.
4. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2022
Hafnarstjórn samþykkir nýja þjónustgjaldskrá Grindavíkurhafnar sem tekur gildi 1. janúar 2022.
5. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Grindavíkurbær og stofnanir
Staðfest fjárhagsáætlun 2022-2025 lögð fram
6. Grindavík-Viðgerð Kvíabryggju og stormpolli 2021
Vegna tafa sem hafa orðið á verkinu sökum þess þess að boltar sem notaðir eru til að festa dekkið niður, þarf að öllum líkindum að fresta verkinu fram á næsta sumar. Hafnarstjóra er falið að sjá til þess að bryggjan komist í notkun, en heimila aðeins takmarkaða þyngd ökutækja á bryggjunni á þeim stað sem ekki er búið að endurnýja í samráði við eftirlitsmann verksins.
Bílstjórum þyngri ökutækja og fiskibátar sem þurfa að nýta sér löndunarkrana hafnarinnar verði bennt á að nota krana 2 og 3 þar sem viðgerð á bryggjunni er lokið og nýja löndunarkranann við Miðgarð.7. Bréf frá DDH ehf
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.
8. Nýr löndunarkrani
Staða verkefnis lögð fram