Hafnarstjórn Grindavíkur - 481. fundur
- 14.02.2022
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:15
- Seljabót 2
- Fundur nr. 481
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Hallfreður G Bjarnasonaðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Páll Valur Björnssonvaramaður
1. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2022
Fundargerð hafnasambandsins nr. 441 lögð fram til kynningar
2. Nýr löndunarkrani
Löndunarkrani á Miðgarði tilbúinn til notkunar á næstu dögum.
3. Áform um stækkun og endurbætur á Miðgarði 3
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við áform Vísis um stækkun á húsnæði að Miðgarði 3. Skoða þarf tíl hlýtar að aðkeyrsla að hafnarvog skerðist ekki. Skipulagsnefnd metur umsóknina út frá deiliskipulagi og lóðarmörkum. Páll J Pálsson vék af fundi undir þessum lið.
4. Fyrirspurn um lóð við Suðurgarð
Hafnarstjórn tekur vel í erindið, en leggur áherslu á að húsnæðið skerði ekki athafnasvæðið um of við Suðurgarð. Hafnarstjóra falið að fylgja málinu eftir með sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs
5. Meðmæli hafnarstjórnar vegna hafnsöguréttinda hafnastjóra
Hafnarstjórn mælir með því að hafnarstjóri fái endurnýjað umboð til að gegna hafnsögumannsstörfum í Grndavíkurhöfn