Hafnarstjórn Grindavíkur - 460. fundur
- 10.09.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:45
- Seljabót 2
- Fundur nr. 460
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Bergþóra Gísladóttiraðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Pétur Hafsteinn Pálssonvaramaður
1. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Farið yfir stöðu verkefnisins.Farið verður í dýptarmælingar til að ganga úr skugga um að dýpið sé í 8 metra meðfram þilinu.
2. Fundargerðir: Hafnasamband Íslands 2018
Fundargerð lögð fram til kynningar, ákveðið að fjölmenna á hafnasambandsþingið 25.-26. október nk.
Fulltrúar hafnarinnar með kjörgengi verða Ómar Ólafsson, Páll Pálsson, Gunnar Harðason og Sigurður Kristmundsson. Aðrir þingfulltrúar verða Bergþóra Gísladóttir og Páll Gíslason.3. Grindavíkurhöfn: Áætlun um móttöku úrgangs og farmleifa 2018
Farið yfir skýrslu hafnarstjóra sem send var til samþykktar hjá Umhverfisstofnun.
4. Grindavíkurhöfn: Fjárhagsáætlun 2019-2022
Farið yfir talnagögn hafnastjóra, honum falið að gera tillögu að gjaldskrá og framkvæmdaáætlun fyrir árið 2019.
5. Grindavíkurhöfn: Deiliskipulag, Eyjabakki og smábátahöfn
Matsskýrla frá Eflu lögð fram.
6. Grindavíkurhöfn, dýpkun 2018 við Miðgarð: Tilboð, verksamningur og framvinda
Farið yfir stöðu verkefnisins.
7. Grindavíkurhöfn: Dýpkun í smábátahöfn 2018
Ákveðið að fá Björgun og Hagtak til að bjóða í að fjarlægja u.þ.b. 1000 rúmmetra af klapparefni við smábátahöfnina þar sem áður var grjótgarður fyrir afgreiðslu á eldsneyti fyrir viðskiptavini Skeljungs.
8. Miðgarður: Þekja, lagnir og raforkuvirki
Farið yfir stöðu verkefnisins.