Frístunda- og menningarnefnd - 82. fundur
- 03.04.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 82
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Kynning á starfsemi Íþróttamannvirkja
Nefndin heimsótti Íþróttamiðstöð Grindavíkur og fékk kynningu á starfseminni frá Hermanni Guðmundssyni, forstöðumanni íþróttamannvirkja.
2. Verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur
Drög að verklagsreglum vegna kjörs á íþróttafólki Grindavíkur lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir að auglýsa drög að reglunum á heimasíðu bæjarins þar sem íbúum og hagaðilum gefst kostur á að gera athugasemdir við reglurnar fyrir 1. maí n.k.
3. Reglugerð og vinnureglur Íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur
Auglýst var eftir ábendingum og athugasemdum vegna endurskoðunar reglugerðar og vinnureglna íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur. Skilafrestur var til 1. apríl. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.
4. Samstarfssamningur á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju
Grindavíkurkirkja óskar eftir endurnýjun samstarfssamnings við Grindavíkurbæ. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að óska eftir frekari upplýsingum frá Grindavíkurkirkju fyrir næsta fund nefndarinnar.
5. Samstarfssamningur 2019-2021
Drög að samstarfssamningi við Hestamannafélagið Brimfaxa lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að óska eftir frekari upplýsingum frá Hestamannafélaginu Brimfaxa fyrir næsta fund nefndarinnar.
6. Ósk um styrk
Drög að samnstarfssamningi við Íþróttafélagið Nes lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir drögin og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja samninginn fyrir bæjarráð.
7. Samstarfssamningur við KFUM og KFUK vegna leikjanámskeiða 2019
Lagt fram erindi frá KFUM og KFUK á Íslandi þar sem óskað er eftir stuðningi við leikjanámskeið í júní. Frístunda- og menningarnefnd tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna drög að samningi og leggja fyrir nefndina.
8. Menningarvika í Grindavík 2019
Rætt um Menningarviku sem að fram fór 9.-17. mars sl. Frístunda- og menningarnefnd leggur til að umræða um framtíð Menningarviku verði tekin í tengslum við endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar.
9. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að setja af stað vinnu við endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar.
10. Sjóarinn síkáti 2019
Drög að dagskrá Sjóarans síkáta 31. maí - 2. júní nk. lögð fram.
11. Hátíðarhöld 17. júní 2019
Rætt um fyrirkomulag hátíðarhalda í tilefni af 17. júní.
12. Leiksvæði og aðstaða til íþróttaiðkunar utanhúss
Rætt um leiksvæði og aðstöðu til íþróttaiðkunar utanhúss. Nefndin felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna úttekt á leiksvæðum og aðstöðu til íþróttaiðkunar utanhúss.
13. Kvikan - Greinargerð um starfsemi og stöðu
Greinagerð um stöðu Kvikunnar lögð fram. Nefndin fagnar því að ráðast eigi í stefnumótunarvinnu fyrir starfsemi hússins.