Frístunda- og menningarnefnd - 80. fundur
- 06.02.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 80
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur
Samþykkt að taka verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur til endurskoðunar. Óskað verður eftir ábendingum frá íþróttafélögum og deildum sem að rétt hafa á að tilnefna íþróttafólk í kjörinu samkvæmt gildandi reglum auk þess sem nefndin óskar eftir ábendingum frá íbúum fyrir 1. mars.
2. Eftirfylgni samninga á frístunda- og menningarsviði 2018
Greinagerðir frá UMFG vegna unglinga- og afreksstyrks 2018 lagðar fram. Nefndin samþykkir greinagerðirnar með vísan í samstarfssamning við UMFG.
3. Umsókn í Afrekssjóð - Srdjan Tufegdzic
Lögð fram umsókn um styrk í Afrekssjóð. Umsókn hafnað á grundvelli reglna um Afrekssjóð og áherslur á styrkingu unglingastarfs.
4. Golfklúbbur Grindavíkur: Endurnýjun samstarfssamnings
Nefndin samþykkir breytingar á drögum að samningi og vísar til bæjarráðs til umfjöllunar.
5. Minja- og sögufélag Grindavíkur: endurnýjun samninga
Nefndin samþykkir breytingar á drögum að samningi og vísar til bæjarráðs til umfjöllunar.
6. Kvennakór Grindavíkur - Samstarfssamningur 2019-2021
Nefndin samþykkir drög að samningi við Kvennakór Grindavíkur og vísar til bæjarráðs til afgreiðslu.
7. Menningarvika í Grindavík 2019
Menningarvika í Grindavík fer fram 9.-17. mars. Drög að dagskrá vikunnar lögð fram. Bæjarbúar eru hvattir til að taka þátt í vikunni.
8. Sjóarinn síkáti 2019
Sjóarinn síkáti fer fram dagana 31. maí til 2. júní nk. Verkefnisáætlun fyrir hátíðina lögð fram.
9. Vinnuskólinn - Starfsáætlun 2019
Drög að handbók Vinnuskólans í Grindavík sumarið 2019 lögð fram. Nefndin vonast til þess að Vinnuskólinn gangi vel og verði vel sóttur í sumar. Þá vonar nefndin að vinnan verði markviss og fjölbreytt.
10. Stafræn endurgerð Bæjarbótar
Nefndin felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leita eftir samningum við útgefanda Bæjarbótar og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn um stafræna endurgerð Bæjarbótar.