Frístunda- og menningarnefnd - 100. fundur
- 07.12.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- sem fjarfundur í Teams
- Fundur nr. 100
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Margrét Kristín Pétursdóttirvaramaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
- Jón Júlíus Karlssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Eftirfylgni samstarfssamninga á frístunda- og menningarsviði 2020
Lagðar fram framvinduskýrslur frá aðalstjórn, fimleikadeild, judódeild, körfuknattleiksdeild, knattspyrnudeild, sunddeild og taekwondodeild UMFG auk skýrslu frá Unglingadeildinni Hafbjörgu vegna samstarfssamninga.
2. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Frístunda- og menningarnefnd hefur unnið að endurskoðun frístunda- og menningarstefnu Grindavíkurbæjar frá því í apríl 2019. Nefndin stóð m.a. fyrir opnum fundi með íbúum, opinni könnun á vef sveitarfélagsins auk þess sem drög að stefnunni voru kynnt íbúum þar sem þeim gafst kostur á að senda inn ábendingar og athugasemdir. Nefndin telur að forgangsatriði í framkvæmd stefnunnar til ársins 2024 ættu að vera:
1. Börnum og unglingum standi til boða að nýta og þróa hæfileika sína á sviði lista og menningar.
2. Kvikan verði menningarhús Grindvíkinga með rúmgóðum fjölnotasal.
3. Viðburðum á vegum Grindavíkurbæjar verði dreift yfir árið.
Frístunda- og menningarnefnd vísar stefnunni til afgreiðslu í bæjarráði.3. Samstarf við Samtökin ´78
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Samtökin '78 um fræðslu til starfsfólks og nemenda grunnskóla, starfsfólks leikskóla, félagsmiðstöðva og stjórnenda auk ráðgjafar. Lýðheilsuteymi Grindavíkurbæjar telur mikilvægt að efla fræðslu um hinsegin málefni meðal starfsfólks og nemenda og leggur til að samningurinn verði samþykktur. Frístunda- og menningarnefnd undir bókun lýðheilsuteymisins.
4. Ungt fólk 2020
Niðurstöður rannsóknarinnar Ungt fólk 2020 sem framkvæmd var í október lagðar fram. Nefndin felur sviðsstjóra að birta lykiltölur úr rannsókninni á vef Grindavíkurbæjar.
5. Viðburðir á frístunda- og menningarsviði 2021
Rætt um viðburði á frístunda- og menningarsviði 2021.
6. Lýðheilsuteymi - 1
Fundargerð 1. fundar lýðheilsuteymis Grindavíkurbæjar lögð fram.