Frístunda- og menningarnefnd - 126. fundur
- 14.06.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 126
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Þórunn Erlingsdóttirvaramaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Auður Arna Guðfinnsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Úttekt á jafnréttismálum í íþrótta- og frístundastarfi í Grindavík
Anna Soffía Víkingsdóttir og Sæunn Gísladóttir frá Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og kynntu jafnréttisúttekt á íþrótta- og æskulýðsstarfi í Grindavík sem unnin var vorið 2023.
Sviðsstjóra falið að kynna skýrsluna þeim aðilum sem standa fyrir íþrótta- og æskulýðsstarfi í Grindavík og kalla eftir úrbótaáætlunum.2. Sjóarinn síkáti 2023
Sjóarinn síkáti fór fram 2.-4. júní sl. Sviðsstjóri fór yfir framkvæmd hátíðarinnar. Lögð var fram frumniðurstaða úr opinni vefkönnun sem frakvæmd var í kjölfar hátíðarinnar.
Frístunda- og menningarnefnd þakkar öllum þeim sem að stóðu að framkvæmd hátíðarinnar og viðburða á meðan henni stóð fyrir sitt framlag.3. Gestastofa Reykjanes jarðvangs
Lagðar fram uppfærðar tillögur hönnunarfyrirtækisins Gagarín að gestastofu Reykjanes Geopark í Kvikunni. Stefnt er að því að gestastofan opni almenningi vorið 2024.
4. Undrun - Dyvyna
Lagðar fram tillögur að útilistaverki í Grindavík.
Nefndin felur sviðsstjóra að kanna nánari útfærslu.5. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Lára Lind Jakobsdóttir sækir um starfsstyrk fyrir tónleikum í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði.
6. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Óskar Kristinn Vignisson sækir um starfsstyrk til kvikmyndagerðar í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði.
7. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Listvinafélag Grindavíkur sækir um starfsstyrk fyrir starfsemi félagsins í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði.
8. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Sóknarnefnd Grindavíkurkirkju sækir um starfsstyrk fyrir kórastarfi í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði.
9. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Einherjar sækja um starfsstyrk í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði.
10. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði
Innsend gögn frá Grindavíkurkirkju vegna starfsstyrks 2023 lögð fram.
11. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði
Innsend gögn frá Grindavíkurdætrum vegna starfsstyrks 2023 lögð fram.