Frístunda- og menningarnefnd - 106. fundur
- 18.08.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 106
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2022
Drög að samstarfssamningum á frístunda- og menningarsviði 2022 lögð fram. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
2. Styrkir vegna íþróttaafreka 2021
Frístunda- og menningarnefnd staðfestir eftirfarandi styrkúthlutanir vegna íþróttaafreka:
Jenný Geirdal Kjartansdóttir: 40.000 kr.
Jóhann Dagur Bjarnason: 25.000 kr.
Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir: 40.000 kr.
Meistaraflokkur kvenna í körfuknattleik: 225.000 kr.
Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir: 40.000 kr.3. Frisbígolffélag Suðurnesja - styrkbeiðni
Frisbígolffélag Suðurnesja óskar eftir styrk vegna uppbyggingar félagsins. Nefndin getur ekki orðið við erindinu þar sem umsóknum um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði skal skilað inn eigi síðar en 31. maí ár hvert.
4. Leiksvæði í Grindavík
Rætt um leiksvæði innanbæjar, ástand þeirra og framtíðarmöguleika. Sviðsstjóra falið að vinna tillögu að skipulagningu íbúasamráðs þar sem kallað verður eftir hugmyndum bæjarbúa að framtíðarskipulagi leikvalla í Grindavík.
5. Haustdagskrá menningarhúsanna 2021
Rætt um haustdagskrá menningarhúsanna í Grindavík. Dagskráin verður kynnt íbúum í byrjun september.
6. Endurmörkun menningarviðburða og menningarhúsa
Farið yfir endurmörkun menningarhúsa og menningarviðburða sem unnið hefur verið að síðan 2019. Nefndin lýsir yfir ánægju með verkefnið.