Frístunda- og menningarnefnd - 88. fundur
- 06.11.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 88
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Kristín Gísladóttirvaramaður
- Sigríður Etna Marinósdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Sviðsstjóri kynnti stöðu málsins.
2. Íþróttafólk Grindavíkur 2019
Íþróttafólk Grindavíkur verður útnefnt á Gamlársdag kl. 11:00. Kjörfundur mun fara fram fimmtudaginn 5. desember kl. 18:00.
3. Fjárhagsáætlun 2020 - Frístunda- og menningarsvið
Fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs fyrir árið 2020 lögð fram til kynningar.
4. Samstarfssamningur við Slysavarnardeildina Þórkötlu 2020-2021
Frestað til næsta fundar.
5. Stefnumótun fyrir Kvikuna
Sviðsstjóri kynnti drög að stefnumótun fyrir Kvikuna og drög að forgangsröðun aðgerða ásamt niðurstöðum úr viðtölum, rýnifundum, íbúafundi og fundi með atvinnulífinu.
6. Menningarviðurkenningar Grindavíkurbæjar
Drög að verklagsreglum vegna afhendingar menningarviðurkenninga Grindavíkurbæjar lagðar fram. Nefndin felur sviðsstjóra að kynna reglurnar á vef Grindavíkurbæjar og gefa íbúum kost á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
7. Sjávarréttahátíð í Grindavík 2019
Sviðsstjóri kynnti hugmyndir að sjávarréttahátíð sem til stendur að fram fari í Grindavík haustið 2020.
8. Tónlistarhátíð á Suðurnesjum
Sviðsstjóri kynnti hugmyndir að tónlistarhátíð á Suðurnesjum. Nefndin tekur vel í hugmyndina og felur sviðsstjóra að vinna áfram að framgangi hugmyndarinnar.
9. Fyrirspurn um kaup á bátasafni
Lögð fram fyrirspurn um áhuga á kaupum á bátasafni í einkaeigu. Nefndin leggur til við bæjarráð að afþakka tilboðið þar sem safnið hefur ekki beina tengingu við Grindavík.