Frístunda- og menningarnefnd - 83. fundur
- 08.05.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 83
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá sem afbrigði mál 1905018 Suðurnesjarall Aífs 2019 sem 10. lið dagskrár.
Samþykkt samhljóða.
1. Verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur
Drög að verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur lagðar fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir reglurnar og vísar þeim til bæjarráðs.
2. Reglur um styrki vegna íþróttaafreka
Drög að reglum um styrki vegna íþróttaafreka lagðar fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir að auglýsa drög að reglunum á heimasíðu bæjarins þar sem íbúum og hagaðilum gefst kostur á að gera athugasemdir við reglurnar fyrir 1. júní n.k.
3. Verklagsreglur vegna samstarfssamninga við félagasamtök á frístunda- og menningarsviði
Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna verklagsreglur vegna samninga við félagasamtök. Nefndin felur sviðsstjóra að auglýsa að samningar sem greiða á eftir á árinu 2020 verði að liggja fyrir 1. september 2019.
4. Samstarfssamningur á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Grindavíkurkirkju. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs.
5. Samstarfssamningur við KFUM og KFUK vegna leikjanámskeiða 2019
Lögð fram drög að samstarfssamningi við KFUM og KFUK á Íslandi. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs.
6. Samstarfssamningur við Félag eldri borgara í Grindavík 2020-2021
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Félag eldri borgara í Grindavík. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs.
7. Samstarfssamningur 2019-2021
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Hestamannafélagið Brimfaxa. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að boða fulltrúa félagsins á næsta fund nefndarinnar.
8. Leikja- og frístundanámskeið sumarið 2019
Rætt um leikja- og frístundanámskeið sumarið 2019.
9. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar 2024
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að hugað verði sem fyrst að 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar árið 2024, m.a. með ritun sögu bæjarins í huga.
10. Suðurnesjarall Aífs 2019
Akstursíþróttafélag Suðurnesja leggur fram tillögu um rallkeppni í Grindavík 31. maí eða 1. júní. Frístunda- og menningarnefnd gerir ekki athugasemdir við það að keppnin fari fram en leggur til að settar verði strangar kröfur um umgengni á keppnissvæðinu.