Frístunda- og menningarnefnd - 125. fundur
- 03.05.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 16:55
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 125
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Þórunn Erlingsdóttirvaramaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Petra Rós Ólafsdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2023
Nefndin staðfestir þá ákvörðun sína að veita þorrablótsnefnd UMFG menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2023. Verðlaunin voru afhent í Kvikunni 17. apríl sl.
2. Verklagsreglur vegna afhendingar menningarviðurkenninga
Rætt um þörf á endurskoðun verklagsreglna vegna afhendingar menningarviðurkenninga Grindavíkurbæjar. Sviðsstjóra falið að vinna málið fyrir næsta fund.
3. Sjóarinn síkáti 2023
Drög að dagskrá Sjóarans síkáta 2023 lögð fram. Dagskráin verður birt um miðjan maí og dreift í hús í lok mánaðarins.
4. Hátíðarhöld 17. júní 2023
Drög að dagskrá vegna hátíðarhalda í tilefni af 17. júní lögð fram.
5. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2023
Lagðar fram verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði.
Auglýst hefur verið eftir umsóknum um starfsstyrki. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí nk.6. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Minja- og sögufélag Grindavíkur
Innsend gögn frá Minja- og sögufélagi Grindavíkur vegna starfsstyrks 2023 lögð fram.
7. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Listvinafélag Grindavíkur
Innsend gögn frá Listvinafélagi Grindavíkur vegna starfsstyrks 2023 lögð fram.
8. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Íþróttafélagið Nes
Innsend gögn frá Íþróttafélaginu Nesi vegna starfsstyrks 2023 lögð fram.
9. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Kvenfélag Grindavíkur
Innsend gögn frá Kvenfélagi Grindavíkur vegna starfsstyrks 2023 lögð fram.
10. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Félag eldri borgara í Grindavík
Innsend gögn frá Félagi eldri borgara í Grindavík vegna starfsstyrks 2023 lögð fram.
11. Fundargerðir ungmennaráðs 2023
Fundargerð 54. fundar ungmennaráðs lögð fram.
12. 50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar - 1
Fundargerð 1. fundar 50 ára afmælisnefndar lögð fram.