Frístunda- og menningarnefnd - 79. fundur
- 09.01.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 79
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Valgerður Söring Valmundsdóttirvaramaður
- Kristín Gísladóttirvaramaður
- Pétur Rúðrik Guðmundssonvaramaður
- Alexandra Marý Hauksdóttirvaramaður
- Alexander Veigar Þórarinssonvaramaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Kynning á starfsemi Þrumunnar
Félagsmiðstöðin Þruman heimsótt. Nefndin fékk kynningu á starfseminni frá Melkorku Ýr Magnúsdóttur frístundaleiðbeinanda.
2. Viðburðir á frístunda- og menningarsviði um jól og áramót 2018-2019
Rætt um hvernig til tókst við tendrun jólatrés, jólaball, útnefningu íþróttafólks ársins og þrettándagleði. Nefndin felur sviðsstjóra að koma með tillögur að endurskoðun á tendrun jólatrés og þrettándagleði.
3. Viðburðadagatal 2019
Viðburðadagatal á frístunda- og menningarsviði fyrir árið 2019 lagt fram.
4. Golfklúbbur Grindavíkur: Endurnýjun samstarfssamnings
Nefndin vísar áður samþykktum samningi til bæjarráðs og hafnar óskum um frekari hækkun á framlagi.
5. Félag eldri borgara í Grindavík - Samstarfssamningur 2019
Lögð fram drög að samningi við Félag eldri borgara í Grindavík. Nefndin samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs.
6. Útsýnispallur við Grindavíkurhöfn
Fyrstu tillögur að hönnun útsýnispalls og sviðs fyrir neðan Kvikuna lagðar fram. Nefndinni líst vel á hugmyndina og leggur til að þær verði þróaðar áfram. Varanlegt svið og skjólsælt torg á þessum stað munu koma að góðum notum í tengslum við hina ýmsu viðburði í sveitarfélaginu og efla bæjarbraginn.
7. Fyrirspurn um geymsluhúsnæði
Minja- og sögufélag Grindavíkur óskar eftir varanlegu geymsluhúsnæði til að hýsa muni í eigu félagsins og Grindavíkurbæjar. Nefndin vísar málinu til bæjarráðs til umfjöllunar.
8. Sirkusráðstefna í Grindavík
Lagt fram erindi frá Sirkus Íslands og Hringleik - Sirkuslistafélagi þar sem kannaður er áhugi á samstarfi og stuðningi við sirkushátíð í Grindavík sumarið 2019. Nefndin er jákvæð gagnvart erindinu og felur sviðsstjóra að ræða við bréfritara.