Frístunda- og menningarnefnd - 99. fundur
- 11.11.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:25
- sem fjarfundur í Teams
- Fundur nr. 99
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Margrét Kristín Pétursdóttirvaramaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Sigríður Etna Marinósdóttirvaramaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
- Jón Júlíus Karlssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Íþróttafólk Grindavíkur 2020
Rætt um fyrirkomulag kjörs og útnefningu á íþróttafólki Grindavíkur 2020. Sviðsstjóra og framkvæmdastjóra UMFG falið að undirbúa rafræna verðlaunahátíð um áramót.
Frístunda- og menningarnefnd hefur möguleika á að tilnefna einstaklinga með lögheimili í Grindavík sem skarað hafa fram úr í íþróttum sem ekki er hægt að stunda sem keppnisgreinar í Grindavík og því utan deilda UMFG eða íþróttafélaga í Grindavík. Nefndin mun ekki nýta rétt sinn til að tilnefna að þessu sinni.2. Eftirfylgni samstarfssamninga á frístunda- og menningarsviði 2020
Lagðar fram framvinduskýrslur vegna samstarfssamninga frá Golfklúbbi Grindavíkur, Hestamannafélaginu Brimfaxa og Pílufélagi Grindavíkur.
3. Fjárhagsáætlun 2021 - Frístunda- og menningarsvið
Fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs 2021 lögð fram eins og hún lítur út eftir fyrri umræðu í bæjarstjórn.
4. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2020
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um framkvæmd Vinnuskóla Grindavíkurbæjar 2020 lagt fram.
5. Viðburðir um jól og áramót 2020-2021
Rætt um fyrirkomulag viðburða um jól og áramót í ljósi aðstæðna í samfélaginu. Ljóst er að dagskrá viðburða á vegum Grindavíkurbæjar verður með öðru sniði en undanfarin ár. Sviðsstjóra falið að útfæra dagskrá með því markmiði að fjölskyldur njóti samverunnar innanbæjar á aðventunni.
6. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar voru birt á vef sveitarfélagsins 14. október sl. og gafst íbúum og hagaðilum kostur á að senda inn ábendingar. Farið yfir þær ábendingar sem bárust.