Frístunda- og menningarnefnd - 116. fundur
- 27.06.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 19:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 116
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sigríður Etna Marinósdóttirformaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Viktor Guðberg Haukssonaðalmaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Auður Arna Guðfinnsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Kynning á frístunda- og menningarsviði
Varamenn í frístunda- og menningarnefnd þau Anna Elísa Karsldóttir Long, Þórunn Erlingsdóttir og Petra Rós Ólafsdóttir sátu fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri kynnti starfsemi frístunda- og menningarsviðs. Einnig var farið yfir samþykkt fyrir frístunda- og menningarnefnd, samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar og siðareglur kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar.2. Starfsáætlun frístunda- og menningarnefndar 2022-2026
Rætt var um helstu verkefni frístunda- og menningarnefndar á kjörtímabilinu. Nefndin mun vinna starfsáætlun á fundi í haust.
3. Framtíð sundlaugarsvæðis
Um miðjan maí var leitað eftir hugmyndum frá íbúum vegna endurhönnunar sundlaugarsvæðisins. Hugmyndir íbúa lagðar fram. Sviðsstjóra falið að vinna úr innsendum hugmyndum og leggja fyrir nefndina á næsta fundi.
4. Sjóarinn síkáti 2022
Sjóarinn síkáti fór fram 10.-12. júní sl. Hátíðin var vel sótt og gekk vel fyrir sig. Frístunda- og menningarnefnd þakkar öllum þeim sem komu að hátíðinni í ár fyrir sitt framlag.
5. Hátíðarhöld 17. júní 2022
Rætt var um hvernig til tókst með hátíðarhöld í tengslum við 17. júní.
6. Strandblakvöllur í Grindavík
Lagt fram erindi frá grindvískum keppendum í strandblaki þar sem skorað er á sveitarfélagið að bæta aðstæður til strandblaks í Grindavík. Nefndin leggur til að erindið verði skoðað samhliða vinnu deiliskipulags fyrir íþróttasvæðið.
7. Skemmdir á innsiglingarvörðum af völdum jarðskjálfta
Gömlu innsiglingarvörðurnar í Grindavík liggja undir skemmdum vegna jarskjálfta. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
8. Umsókn um styrk vegna íþróttaafreka
Nökkvi Már Jónsson sækir um fræðslustyrk á grundvelli 7. gr. reglna um styrki vegna íþróttaafreka. Nefndin frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir frekari gögnum.
9. Umsókn um styrk vegna íþróttaafreka
Þorleifur Ólafsson sækir um fræðslustyrk á grundvelli 7. gr. reglna um styrki vegna íþróttaafreka. Samþykkt að veita styrk að upphæð kr. 35.000.
10. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Grindavíkurkirkja sækir um starfsstyrk fyrir barna- og unglingastarf 2023-2026 í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
11. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Pílufélag Grindavíkur sækir um starfsstyrk í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
12. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Listvinafélag Grindavíkur sækir um starfsstyrk 2023-2025 í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
13. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Unglingadeildin Hafbjörg
Innsend gögn frá Unglingadeildinni Hafbjörgu vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
14. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Hestamannafélagið Brimfaxi
Innsend gögn frá Hestamannafélaginu Brimfaxa vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.