Frístunda- og menningarnefnd - 111. fundur
- 19.01.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 111
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
- Sigríður Etna Marinósdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Deiliskipulag íþróttasvæðis
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Frumdrög að breyttu deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið við Austurveg lögð fram.2. Íþróttafólk Grindavíkur 2021
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir hvernig til tókst með kjör og útnefningu á íþróttafólki Grindavíkur 2021.
Aðalstjórn UMFG leggur til að kjörið verði áfram leynilegt en niðurstaðan verði kynnt kjörnefnd á kjörfundi. Kjörnefnd hafi þá möguleika á að endurtaka kosninguna að því gefnu að 2/3 hluti fundarmanna samþykki það.
Nefndin samþykkir að taka tillöguna fyrir á næsta fundi.3. Íþrótta- og frístundastefna Grindavíkurbæjar
Endurskoða þarf íþrótta- og frístundastefnu Grindavíkurbæjar.
Nefndin felur sviðsstjóra að hefja undirbúning að endurskoðun íþrótta- og frístundastefnu Grindavíkurbæjar.4. Styrkir vegna íþróttaafreka 2021
Frístunda- og menningarnefnd staðfestir eftirfarandi styrkúthlutanir vegna íþróttaafreka:
A lið Pílufélags Grindavíkur: 450.000 kr.
Matthías Örn Friðriksson: 45.000 kr.5. Leiksvæði í Grindavík
Drög að framtíðarsýn fyrir leiksvæði í Grindavík lögð fram. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
6. Samþykkt fyrir frístunda- og menningarnefnd - Endurskoðun 2022
Drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir frístunda- og menningarnefnd lögð fram. Nefndin samþykkir samþykktirnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
7. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar tekin fyrir að nýju. Nefndin samþykkir breytingar á drögunum fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu í bæjarráði.
8. Dagskrá menningarhúsanna í Grindavík 2022
Ekki hafa verið skipulagðir viðburðir í menningarhúsunum Grindavíkurbæjar næstu vikur vegna mikillar óvissu um sóttvarnir og samkomutakmarkanir.
9. Sjóarinn síkáti 2022
Gert er ráð fyrir að Sjóarinn síkáti fari fram 10.12. júní nk. Mikil óvissa er hvernig skipulagi hátíðarinnar verður háttað.
Nefndin leggur áherslu á að skipuleggja fjölskyldudagskrá á laugardegi en sunnudagurinn verði hátíðlegri. Ekki er gert ráð fyrir dagskrá á föstudagskvöldi eins og verið hefur.