Frístunda- og menningarnefnd - 122. fundur
- 11.01.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 122
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sigríður Etna Marinósdóttirformaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Viktor Guðberg Haukssonaðalmaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Auður Arna Guðfinnsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur frá 2020 lagðar fram.
Nefndin telur ekki þörf á að endurskoða reglurnar að þessu sinni.2. Hönnun sundlaugarsvæðis og aðliggjandi mannvirkja
Frumdrög að hönnun á nýju sundlaugarsvæði lögð fram ásamt minnisblaði um gang hönnunarvinnu á sundlaugarsvæðinu. Stefnt er að því að kynna tillögur íbúum í febrúar.
3. Húsnæðismál ungmennahúss
Lagt fram erindi frá ungmennaráði þar sem ráðið óskar eftir afnotum af Kvennó fyrir ungmennahús.
Nefndin telur ekki tímabært að taka afstöðu til erindisins þar sem húsið er í útleigu en lýsir yfir áhuga sínum á að finna lausn á húsnæðismálum ungmennahúss.4. Reglur um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík
Reglur um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík frá 2006 lagðar fram.
Nefndin leggur til við bæjarráð að fella reglurnar úr gildi.5. Dagskrá menningarhúsanna 2023
Rætt um viðburði í menningarhúsunum vorið 2023.
6. Sjóarinn síkáti 2023
Lögð fram verkefnisáætlun fyrir Sjóarann síkáta. Hátíðin fer fram 2.-4. júní nk.
7. Ljósmyndasýning utanhúss
Grindavíkurbær hefur hlotið styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja fyrir ljósmyndasýningu utanhúss. Stefnt er að því að setja sýninguna upp í sumar.
8. Fundargerðir ungmennaráðs 2022
Fundargerðir 49. og 50. fundar ungmennaráðs lagðar fram.