Frístunda- og menningarnefnd - 81. fundur
- 06.03.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 81
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Kynning á starfsemi Bókasafns Grindavíkur
Nefndin heimsótti Bókasafn Grindavíkur og fékk kynningu á starfsemi safnsins frá Andreu Ævarsdóttur, forstöðumanni.
2. Verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur
Lagðar fram innsendar tillögur vegna breytinga á verklagsreglum vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að leggja fram tillögur að breytingum á næsta fundi nefndarinnar.
3. Reglugerð og vinnureglur Íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur
Samþykkt að taka reglugerð og vinnureglur Íþrótta- og afrekssjóðs til endurskoðunar. Óskað verður eftir ábendingum frá íþróttafélögum og deildum sem að rétt hafa á að tilnefna íþróttafólk í kjörinu samkvæmt gildandi reglum auk þess sem nefndin óskar eftir ábendingum frá íbúum fyrir 1. mars.
4. Samstarfssamningur um umhirðu á félagssvæði 2019
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Knattspyrnudeild UMFG um umhirðu á félagssvæði deildarinnar árið 2019. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs.
5. Samstarfssamningur 2019-2021
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að vinna að nýjum samstarfssamningi við Hestamannafélagið Brimfaxa.
6. Ósk um styrk
Íþróttafélagið Nes óskar eftir samstarfssamningi við Grindavíkurbæ til 5 ára. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að leggja drög að samstarfssamningi fyrir næsta fund nefndarinnar.
7. Fyrirspurn vegna draga að endurskoðuðu aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2030
Lagt fram erindi frá stjórn og reiðveganefnd Brimaxa varðandi drög að nýju aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2030. Frístunda- og menningarnefnd leggur áherslu á að reiðvegir eru mikilvægir hestamönnum til þess að þau geti stundað íþrótt sína og hvetur til þess að umferð ríðandi og gangandi verði aðskilin frá umferð vélknúinna ökutækja.
8. Menningarvika í Grindavík 2019
Dagskrá Menningarviku 9.-17. mars nk. lögð fram.
9. Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2019
Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samhljóða að afhenda Höllu Maríu Svansdóttur menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2019.
10. Aðstaða til tónleikahalds í Grindavík
Rætt um skort á aðstöðu til tónleikahalds í Grindavík. Frístunda- og menningarnefnd vísar málinu til bæjarráðs.
11. Leikja- og frístundanámskeið sumarið 2019
Rætt um leikja- og frístundanámskeið sumarið 2019.