Frístunda- og menningarnefnd - 118. fundur
- 07.09.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 20:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 118
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Sigríður Etna Marinósdóttirformaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Viktor Guðberg Haukssonaðalmaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Petra Rós Ólafsdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Heimsóknir í stofnanir á frístunda- og menningarsviði
Nefndin heimsótti félagsmiðstöðina Þrumuna, Bókasafn Grindavíkur, Hópsskóla, íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar og Kvikuna menningarhús. Nefndin hitti forstöðumenn stofnanna og kynnti sér starfsemi þeirra.
2. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samsstarfssamningi við Listvinafélag Grindavíkur lögð fram. Nefndin samþykkir samningsdrögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
3. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samsstarfssamningi við Pílufélag Grindavíkur lögð fram. Nefndin samþykkir samningsdrögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
4. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samsstarfssamningi við Láru Lind Jakobsdóttur lögð fram. Nefndin samþykkir samningsdrögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
5. Fjárhagsáætlun 2023 - Frístunda- og menningarsvið
Eftir heimsóknir á stofnanir á frístunda- og menningarsviði leggur nefndin áherslu á eftirfarandi við gerð fjárhagsáætlunar 2023:
*Lokið verði við deiliskipulag íþróttasvæðisins og forhönnun sundlaugarsvæðisins.
*Ráðinn verði starfsmaður í 100% starfshlutfall í félagsmiðstöðina Þrumuna.
*Skipt verði um gervigras og undirlag í Hópinu í kjölfar mats úttektaraðila ef viðkomandi telur þörf á því.
*Bæta aðgengi að knattspyrnuvellinum og Hópinu þannig að aðgengi verði fyrir alla.
*Ráðinn verði starfsmaður í 50% starfshlutfall á Bókasafn Grindavíkur sem sinnir safni í Hópsskóla.
*Aukið fjármagn verði sett í viðhald og uppbyggingu leikvalla.
*Haldið verði áfram að styðja við menningarstarfsemi í Kvikunni.6. Framtíð sundlaugarsvæðis
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála varðandi forhönnun sundlaugarsvæðis.
Bæjarráð samþykkti á 1620. fundi sínum þann 6. september sl. að tillögur frístunda- og menningarnefndar sem samþykktar voru á 117. fundi nefndarinnar verði notaðar til grundvallar við hönnun svæðisins.7. Gestastofa Reykjanes jarðvangs
Hugmyndabók fyrir gestastofu Reykjanes Geopark í Kvikunni lögð fram.
8. Dagskrá menningarhúsanna í Grindavík 2022
Dagskrá menningarhúsanna í Grindavík haustið 2022 lögð fram.
9. Viðburðir um jól og áramót 2022-2023
Rætt um viðburðahald um jól og áramót 2022-2023.