Frístunda- og menningarnefnd - 84. fundur
- 12.06.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 84
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Pétur Rúðrik Guðmundssonvaramaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Samstarfssamningur 2019-2021
Á fundinn mætti Valgerður Söring Valmundsdóttir frá Hestamannafélaginu Brimfaxa. Drög að samstarfssamningi við félagið lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.
2. Reglur um styrki vegna íþróttaafreka
Lagðar fram ábendingar og athugasemdir við drög að reglum um styrki vegna íþróttaafreka. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.
3. Afrekssjóður
Frístunda- og menningarnefnd staðfestir eftirfarandi úthlutanir úr Íþrótta- og afrekssjóði:
Bragi Guðmundsson: 100.000 kr.
Elísabet Ýr Ægisdóttir: 100.000 kr.
Júlía Ruth Thasaphong: 100.000 kr.
Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir: 100.000 kr.
Ólöf Rún Óladóttir: 100.000 kr.
Rebekka Rut Hjálmarsdóttir: 50.000 kr.
Viktoría Rós Horne: 100.000 kr.
Lögð fram umsókn í sjóðinn frá Braga Guðmundssyni. Frístunda- og menningarnefnd hafnar umsókninni þar sem ekki er um landsliðsverkefni að ræða.4. Skipulag sundlaugarsvæðis
Hugmyndir forstöðumanns íþróttamannvirkja að uppbyggingu sundlaugarsvæðis lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd beinir því til bæjarráðs að flýta vinnu við framtíðarskipulag sundlaugarsvæðisins og hefja vinnu við þarfagreiningu hið fyrsta.
5. Samstarfssamningar við Knattspyrnudeild UMFG 2020-2021
Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir endurnýjun á samstarfssamningum við Grindavíkurbæ. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.
6. Samstarfssamningur við Körfuknattleiksdeild UMFG
Drög að samstarfssamningi við Körfuknattleiksdeild UMFG lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.
7. Samstarfssamningur við Knattspyrnufélagið GG 2020-2021
Knattspyrnufélagið GG óskar eftir endurnýjun á samstarfssamningi við Grindavíkurbæ. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja drög að samningi fyrir næsta fund nefndarinnar.
8. Samstarfssamningur við Unglindadeildina Hafbjörgu 2020-2021
Unglingadeildin Hafbjörg óskar eftir endurnýjun á samstarfssamningi við Grindavíkurbæ. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja drög að samningi fyrir næsta fund nefndarinnar.
9. Samstarfssamningur við Slysavarnardeildina Þórkötlu 2020-2021
Slysavarnardeildin Þórkatla óskar eftir endurnýjun á samstarfssamningi við Grindavíkurbæ. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.
10. Umsókn um styrk
Lagt fram erindi frá Vélíþróttafélagi Reykjaness þar sem farið er fram á styrk til uppbyggingar félagssvæðis við Sólbrekkuskóg. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja drög að samningi fyrir næsta fund nefndarinnar.
11. Hreystigarður
Málinu frestað til næsta fundar.
12. Sjóarinn síkáti 2019
Rætt um framkvæmd Sjóarans síkáta sem að fram fór 31. maí til 2. júní sl. og niðurstöður íbúakönnunar lagðar fram. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja fram drög að framtíðarsýn fyrir Sjóarann síkáta sem byggir á niðurstöðum íbúakönnunar á næsta fundi nefndarinnar.
13. Stefnumótun í íþróttamálum 2019-2030
Stefna mennta- og menningarmálaráðuneytisins í íþróttamálum 2019-2030 lögð fram.