Frístunda- og menningarnefnd - 92. fundur
- 04.03.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 92
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Pétur Rúðrik Guðmundssonvaramaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
Rætt um mögulegar breytingar á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur. Sviðssjóra frístunda- og menningarsviðs falið að leggja fram tillögur að breytingum á næsta fundi nefndarinnar í samræmi við umræður á fundinum.
2. Styrkir vegna íþróttaafreka 2020
Frestur til að sækja um fræðslustyrki rann út 25. febrúar sl. Ein umsókn barst nefndinni. Samþykkt að styrkja Anton Inga Rúnarsson og Milos Jugovic um samtals 100.000 kr. vegna kynnisferðar til Serbíu.
3. Samstarf sundlauga á Suðurnesjum
Lagt fram minnisblað samráðshóps um heilsueflandi samfélag á Suðurnesjum. Samráðshópurinn leggur til við sveitarfélögin á Suðurnesjum að:
a) fella niður gjöld fyrir börn og ungmenni yngri en 18 ára þvert á sveitarfélög.
b) árskort í sundlaugarnar gildi á milli sundlauga á Suðurnesjum.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að öll árskort í sundlaugar á Suðurnesjum gildi á milli lauga á svæðinu að því gefnu að önnur sveitarfélög á Suðurnesjum samþykki tillögur samráðshópsins.4. Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2020
Pétur Rúðrik Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu og umfjöllun málsins.
Farið yfir tilnefningar til menningarverðlauna Grindavíkurbæjar 2020.5. Menningarvor í Grindavík 2020
Dagskrá Menningarvors í Grindavík 2020 lögð fram.
6. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Lögð fram drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar. Sviðsstjóri mun vinna áfram í málinu.