Frístunda- og menningarnefnd - 97. fundur
- 02.09.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 97
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Margrét Kristín Pétursdóttirvaramaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
- Jón Júlíus Karlssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
Lagðar fram tillögur að breytingum á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.
2. Jafnréttis- og aðgerðaáætlun UMFG
Lagt fram minnisblað um ákvæði er snúa að jafnréttismálum í samstarfssamningi Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG og samskipta sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs við aðalstjórn UMFG vegna jafnréttismála innan félagsins.
Frístunda- og menningarnefnd fagnar því að hafin sé vinna við gerð jafnréttisstefnu fyrir UMFG ásamt aðgerðaáætlun.3. Framtíðaruppbyging íþróttamannvirkja í Grindavík
Ungmennafélag Grindavíkur óskar eftir því að hefja samstarf við Grindavíkurbæ við vinnu að nýrri framtíðarsýn íþróttasvæðsins í Grindavík.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að skipaður verði starfshópur til að leggja mat á kostnað og hugsanlegar sviðsmyndir vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja í Grindavík. Sviðsstjóra er falið að leggja fram tillögu að erinindisbréfi fyrir bæjarráð.4. Fjárhagsáætlun 2021 - Frístunda- og menningarsvið
Rætt um áherslur í fjárhagsáætlunargerð á frístunda- og menningarsviði fyrir árið 2021.
5. Lýðheilsuvísar fyrir Suðurnes 2020
Lagðir fram lýðheilsuvísar fyrir Suðurnes 2020.
6. Vöktun áhrifaþátta heilbrigðis í Grindavík 2019
Lagðar fram niðurstöður könnunar á áhrifaþáttum heilbrigiðs sem framkvæmd var meðal Grindvíkinga árið 2019.
7. Kvöldopnun í Þrumunni fyrir ungmenni 16 ára og eldri
Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar leggur til að húsnæðið verði opið eitt kvöld í viku fyrir ungmenni, 16 ára og eldri.
Frístunda- og menningarnefnd tekur jákvætt í hugmyndina og vísar málinu til bæjarráðs.8. Leiksvæði í Selskógi
Rætt um mögulegar endurbætur á leiksvæðinu í Selskógi. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að við gerð deiliskipulags fyrir Selskóg verði gert ráð fyrir leiksvæði sem fellur að umhverfinu, samnaber önnur skógræktarsvæði á landinu.
9. Viðburðir um jól og áramót 2020-2021
V
Lagt fram minnisblað um viðburði á vegum Grindavíkurbæjar um jól og áramót 2020-2021. Sviðsstjóra falið að leggja minnisblaðið fyrir bæjarráð.
10. Starfsemi Kvikunnar 2020
Lögð fram samantekt verkefnastjóra framtíðarþróunar Kvikunnar um starfsemina í húsinu það sem af er ári 2020. Frístunda- og menningarnefnd lýsir yfir ánægju sinni með þær breytingar sem orðið hafa á starfsemi hússins á árinu. Nefndin leggur áherslu á að áfram verði unnið að þróun hússins á árinu 2021.
11. Endurskoðuð jafnréttisáætlun 2020
Drög að jafnréttisáætlun Grindavíkurbæjar lögð fram.
12. Boð um kaup á uppstoppuðum fuglum
Lagt fram boð um kaup á safni af uppstoppuðum fuglum í einkaeigu. Sviðsstjóra falið að afla frekari upplýsinga fyrir næsta fund nefndarinnar.
13. Sjávarréttahátíð í Grindavík 2020
Sjávarréttahátíð sem fram átti að fara í Grindavík haustið 2020 hefur verið frestað til ársins 2021.
14. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Frestað til næsta fundar.
15. Sjávarauðlindaskólinn 2020
Starfsskýrsla Sjávarauðlindaskólans sumarið 2020 lögð fram til kynningar.