Frístunda- og menningarnefnd - 129. fundur
- 01.11.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 129
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Anna Elísa Karlsdóttir Longformaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirvaraformaður
- Viktor Guðberg Haukssonaðalmaður
- Hulda Kristín Smáradóttiraðalmaður
- Auður Arna Guðfinnsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Ástand og nýting Gesthúss
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Rætt var um mögulega nýtingu Gesthúss. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.2. Geithafurinn - skjaldarmerki Grindavíkur
Til umræðu er að reisa skúlptúr í formi geithafurs í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar.
Rætt um mögulega staðsetningu. Sviðsstjóra falið að kynna hugmyndir nefndarinnar fyrir bæjarráði.3. Leiksvæði við Hraunbraut
Fyrstu tillögur að endurnýjun leiksvæðisins við Hraunbraut lagðar fram.
4. Fjárhagsáætlun 2024 - Frístunda- og menningarsvið
Fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs 2024 lögð fram til kynningar eins og hún lítur út eftir fyrri umræðu í bæjarstjórn.
5. Sjóarinn síkáti 2024
Rætt um dagskrá Sjóarans síkáta 31. maí - 2. júní 2024.
Sviðsstjóra falið að kynna hugmyndir nefndarinnar að dagskrárramma hátíðarinnar fyrir íbúum og öðrum hagsmunaaaðilum.6. Dagskrá í tilefni 50 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar
Rætt um hugmyndir 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar að hátíðardagskrá á árinu 2024.
7. Endurnýjun á samstarfssamningi við Samtökin ´78
Umsögn fræðslunefndar frá 12. október sl. lögð fram.
Nefndin samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu í bæjarráði.8. Beiðni um endurskoðun á samstarfssamningi Grindavíkurbæjar við UMFG
Formaður og gjaldkeri UMFG sátu fundinn undir þessum lið.
Drög að viðauka við samstarfssamning milli Grindavíkurbæjar og UMFG um eflingu íþróttastarfs í Grindavík 2020-2024 lögð fram. Nefndin vísar drögunum til afgreiðslu í bæjarráði.9. Íþróttafólk Grindavíkur 2023
Formaður UMFG sat fundinn undir þessum lið.
Rætt um fyrirkomulag kjörs og útnefningu á íþróttafólki Grindavíkur 2023.
Frístunda- og menningarnefnd hefur möguleika á að tilnefna einstaklinga með lögheimili í Grindavík sem skarað hafa fram úr í íþróttum og eru utan íþróttafélaga í Grindavík. Nefndin mun ekki nýta rétt sinn á að tilnefna að þessu sinni.10. Styrkir vegna landsliðsverkefna
Samantekt á upphæðum styrkja vegna þátttöku í landsliðsverkefnum lögð fram.
Nefndin felur sviðsstjóra að hefja vinnu við endurskoðun á reglum um styrki vegna íþróttaafreka.11. 50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar - 4
Fundargerð 4. fundar 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar.
12. 50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar - 5
Fundargerð 5. fundar 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar.