Frístunda- og menningarnefnd - 85. fundur
- 14.08.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 85
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Kristín Gísladóttirvaramaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Samstarfssamningur við Slysavarnardeildina Þórkötlu 2020-2021
Á fundinn mættu Guðrún Kristín Einarsdóttir, Emma Geirsdóttir, Ragna Gestsdóttir, Valdís Helga Lárusdóttir og Guðrún María Vilbergsdóttir frá Slysavarnardeildinni Þórkötlu. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja drög að samningi við deildina fyrir næsta fund nefndarinnar.
2. Byggingarnefnd vegna viðbyggingar við Hópið
Hugmyndir að viðbyggingu við Hópið lagðar fram.
3. Reglur um styrki vegna íþróttaafreka
Málinu frestað til næsta fundar.
4. Verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði
Frístunda- og menningarnefnd samþykkir verklagsreglurnar fyrir sitt leiti og vísar þeim til bæjarráðs til afgreiðslu.
5. Afrekssjóður
Frístunda- og menningarnefnd staðfestir eftirfarandi úthlutanir úr Íþrótta- og afrekssjóði:
Alex Máni Pétursson: 50.000 kr.
Alexander Veigar Þorvaldsson: 50.000 kr.
Hekla Eik Nökkvadóttir: 30.000 kr.
Hrund Skúladóttir: 50.000 kr.
Jóhann Dagur Bjarnason: 50.000 kr.
Sigurbjörg Sigurpálsdóttir: 30.000 kr.
Unnur Stefánsdóttir: 30.000 kr.
Tómas Breki Bjarnason: 30.000 kr.6. Samstarfssamningur við Unglingadeildina Hafbjörgu 2020-2021
Lögð fram drög að samningi við Unglingadeildina Hafbjörgu 2020-2021. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti með breytingum og vísar honum til bæjarráðs.
7. Samstarfssamningur við Knattspyrnufélagið GG 2020-2021
Lögð fram drög að samningi við Knattspyrnufélagið G.G. 2020-2021. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.
8. Endurnýjun samstarfssamnings um skógræktarsvæðið við Selskóg
Lögð fram drög að samningi við Skógræktarfélag Grindavíkur 2020-2021. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.
9. Umsókn um styrk
Lögð fram drög að samningi við Vélíþróttafélag Reykjaness 2020-2021. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.
10. Framtíðarsýn fyrir Sjóarann síkáta
Lögð fram drög að framtíðarsýn fyrir Sjóarann síkáta ásamt aðgerðaáætlun til ársins 2023. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram og kynna drögin fyrir hagaðilum.
11. Hreystigarður
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að í stað hreystigarðs verði unnið að gerð heilsustígs með æfingartækjum á nokkrum opnum svæðum innan þéttbýlisins í Grindavík. Nefndin felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að útfæra hugmyndina og leggja fyrir nefndina.
12. Fyrirspurn um afstöðu Grindavíkurbæjar til samstarfs safna - ábyrgðarsöfn
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að taka jákvætt í erindið og kanna kosti við samstarf og sameiningu safna á Suðurnesjum.