Frístunda- og menningarnefnd - 87. fundur
- 02.10.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 87
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Drög að samstarfssamningi við aðalastjórn UMFG 2020-2021 lögð fram með athugasemdum aðalstjórnar UMFG. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna áfram í málinu.
2. Styrkbeiðni vegna B-liðs
B-lið UMFG í meistarflokki kvenna í körfuknattleik óskar eftir styrk til þátttöku í íslandsmóti. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna áfram í málinu.
3. Skipulag sundlaugarsvæðis
Þarfagreining vegna framtíðaruppbyggingar sundlaugarsvæðis í Grindavík lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd lýsir ánægju sinni með greininguna og leggur til við bæjarráð að skipuð verði bygginganefnd til þess að fylgja eftir tillögunum sem fram koma í skýrslunni.
4. Afrekssjóður
Frístunda- og menningarnefnd staðfestir eftirfarandi úthlutanir úr Íþrótta- og afrekssjóði:
Alex Máni Pétursson: 30.000 kr.
Alexander Veigar Þorvaldsson: 30.000 kr.
Jóhann Dagur Bjarnason: 50.000 kr.
Tómas Breki Bjarnason: 30.000 kr.5. Ósk um aðstöðu fyrir Pílufélag Grindavíkur
Uppfærð drög að samstarfssamningi við Pílufélag Grindavíkur 2020-2021 lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu í bæjarráði.
6. Samstarfssamningur við Slysavarnardeildina Þórkötlu 2020-2021
Rætt um samstarfssamning við Slysavarnardeildina Þórkötlu. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna áfram í málinu.
7. Viðburðir um jól og áramót 2019-2020
Tendrað verður á jólatré Grindavíkurbæjar fyrir framan Íþróttamiðstöðina 29. nóvember, jólaball Grindavíkur fer fram í Gjánni 27. desember og þrettándagleði í og við Kvikuna 6. janúar. Ekki verður ármaótabrenna á vegum Grindavíkurbæjar líkt og undanfarin ár.
8. Gönguleið um sjávartengdar minjar
Lögð fram hugmynd að gönguleið um sjávartengdar minjar í Grindavík ásamt tillögu Landmótunar um bætt aðgengi gangandi að hafnarsvæðinu. Frístunda- og menningarnefnd lýsir yfir ánægju með fyrstu drög að gönguleiðinni. Nefndin leggur áherslu á að Kvikan verði anddyrri hafnarinnar og gætt verði að góðri tengingu við Sjómannagarðinn.
9. Menningarviðurkenningar Grindavíkurbæjar
Rætt um reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Grindavíkurbæjar og reglur um menningarverðlaun Grindavíkur. Frístunda- og menningarnefnd felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja fram tillögu að verklagsreglum vegna afhendingar menningarviðurkenninga Grindavíkurbæjar.