Frístunda- og menningarnefnd - 96. fundur
- 04.06.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 96
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
Lagðar fram tillögur að breytingum á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
2. Styrktarbeiðni vegna búnaðar til útsendinga íþróttakappleikja
Lögð fram styrkbeiðni frá aðalstjórn UMFG vegna kaupa á búnaði til vefútsendinga. Frístunda- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið fyrir sitt leyti og vísar því til bæjarráðs.
3. Hjóla- og gönguvika í Grindavík
Lögð fram drög að dagskrá Hjóla- og gönguviku í Grindavík 24.-27. júní nk.
4. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2021
Auglýst var eftir starfsstyrkjum á frístunda- og menningarsviði vegna ársins 2021 þann 20. apríl sl. og rann umsóknarfrestur út 31. maí. Tvær umsóknir bárust. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
5. Hátíðarhöld 17. júní 2021
Drög að dagskrá hátíðarhalda í tilefni af 17. júní lögð fram.
6. Leiksvæði í Selskógi
Frestað til næsta fundar.