Frístunda- og menningarnefnd - 64. fundur
- 21.06.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 64
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Anna Eyjólfsdóttir: Þríeind 339
Sviðsstjóra falið að vinna áætlun útfrá þátttöku í þessu verkefni og gera ráð fyrir þátttöku skóla á svæði. Nefndin leggur til að Grindavíkurbær sé þátttakandi í verkefninu og sendir erindið til bæjarráðs.
2. Íþrótta- og afrekssjóður Grindavíkur: Umsókn frá Körfuknattleiksdeild UMFG 2017
Nefndin samþykkir umsóknina
3. Íþrótta- og afrekssjóður Grindavíkur: umsókn frá Körfuknattleiksdeild vegna þátttöku Ólafar Rúnar Óladóttur á NM og EM sumarið 2017
Nefndin samþykkir umsóknina
4. Íþrótta- og afrekssjóður Grindavíkur: umsókn frá Körfuknattleiksdeild vegna þátttöku Vigdísar Maríu Þórhallsdóttur
Nefndin samþykkir umsóknina
5. Vinnuskólinn: skipulag 2017
Nefndin leggur til að skipulag og fyrirkomulag vinnuskóla verði endurskoðað í haust og vinnuskóli færður undir verkssvið skipulags- og umhverfissvið. Rætt um erindi þar sem óskað er eftir vinnu fyrir erlenda ríkisborgara í vinnuskóla. Nefndin áréttar að erlendir ríkisborgarar þurfa að uppfylla lög og skyldur sem gilda og geta þá sótt um vinnu í vinnuskóla.
6. Sjóarinn síkáti 2017: verkefnisáætlun 2017
Rýnifundur haldinn í hádeginu 21. júní og farið yfir það sem vel gekk og þarf að laga. Lagt er til að opinn fundur verður haldinn í haust með íbúum þar sem framtíð hátíðarinnar er rædd, fyrirkomulag og viðburðir. Hátíðin gekk vel og gestafjöldi svipaður og síðasta ár.
7. Hátíðarhöld: 17. júní
Hátíðarhöldin voru haldin í góðu veðri á hátíðarsvæðinu við íþróttahúsið. Bæta þarf gæslu vegna lokunar gatna og sviðsstjóra falið að fara í þá vinnu. Nefndin leggur til að íþróttamannvirki (Sundlaug) séu opin 17. júní
8. Grindavíkurbær: Heilsueflandi samfélag
Vinnuhópi, sviðsstjóra, leikskólastjóra Króks og frístundafulltrúa falið að gera fjárhagsáætlun og verkefnaáætlun fyrir verkefnið Heilsueflandi samfélag og hafa tilbúið fyrir fjárhagsáætlunarvinnu í haust.
9. Frístundanámskeið: Gleðilegt sumar í Grindavík 2017
Námskeiðið kynnt og bæklingur verður kominn á heimasíðu sveitarfélagsins í vikunni 26. júní-30. júní