Frístunda- og menningarnefnd - 107. fundur
- 08.09.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 107
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Alexander Veigar Þórarinssonaðalmaður
- Irmý Rós Þorsteinsdóttirformaður
- Sigríður Etna Marinósdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Jafnréttis- og aðgerðaáætlun UMFG
Framkvæmdastjóri UMFG sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Rætt um ákvæði er snúa að jafnréttismálum og óæskilegri hegðun í samstarfssamningi Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG.2. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2022
Athugasemdir við samninga vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði lagðar fram. Nefndin samþykkir samningana fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
3. Styrkir vegna íþróttaafreka 2021
Frístunda- og menningarnefnd staðfestir eftirfarandi styrkúthlutanir vegna íþróttaafreka:
Bragi Guðmundsson: 25.000 kr.
Hekla Eik Nökkvadóttir: 25.000 kr.4. Leiksvæði í Grindavík
Tillaga að fyrirkomulagi íbúasamráðs vegna framtíðarskipulags leikvalla lagt fram. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samræmi við tillöguna og leita eftir áliti ungmennaráðs, íbúa, skólastjórnenda og nemenda í leik- og grunnskólum á leikvöllum í Grindavík.
5. Fjárhagsáætlun 2022 - Frístunda- og menningarsvið
Rætt um áherslur í fjárhagsáætlunargerð á frístunda- og menningarsviði vegna ársins 2022.
6. Viðburðir um jól og áramót 2021-2022
Rætt um viðburði á vegum Grindavíkurbæjar um jól og áramót 2021-2022.
7. Verkefni fjölmenningarfulltrúa sumarið 2021
Grindavíkurbær réð fjölmenningarfulltrúa til starfa í sumar gegnum verkefnið "sumarstörf námsmanna 2021". Yfirlit yfir störf fjölmenningarfulltrúa lagt fram.
8. Umferðaröryggismál í Grindavík
Drög að stefnu Grindavíkurbæjar í umferðaröryggismálum lögð fram.