Frístunda- og menningarnefnd - 71.. fundur
- 07.03.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 71.
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Anita Björk Sveinsdóttiraðalmaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
- Sigríður Berta Grétarsdóttir
1. Styrkbeiðni: Söngvaskáld á Suðurnesjum
Nefndin fagnar verkefninu en sér ekki fært um að styrkja verkefnið að þessu sinni.
2. Listafélag Nemendafélags FSS: ósk um styrk
Nefndin leggur til að verkefnið verði styrkt um 50.000 kr og vísar málinu til bæjarráðs til ákvörðunar.
3. Kvennó: ósk frá Ungmennaráði Grindavíkurbæjar
Nefndin fagnar þessu frumkvæði Ungmennaráðs. Sviðsstjóra er falið að ganga frá samningi við Ungmennaráð og hafa eftirlit með framkvæmd.
4. Menningarvika 2018: Frístunda- og menningarsvið
Dagskráin kynnt
5. Gamlar vörður innan byggðar: fyrirspurn um áætlanir
Frístunda- og menningarnefnd tekur undir með Minja- og sögufélaginu um mikilvægi þess að tryggt sé að vörður séu óhreyfðar. Minja- og sögufélagið er hvatt til þess að standa fyrir kynningu á mikilvægi og umgengni við vörður. Erindinu er vísað til skipulag skipulagsnefndar og umhverfis og ferðamálanefndar.
6. Bæjarlistamaður Grindavíkur 2018: Tilnefningar
Anna Sigríður Sigurjónsdóttir er útnefnd bæjarlistamaður Grindavíkur 2018
7. Beitingaskúrar við Vesturbraut: ósk um afturköllun leyfis til niðurrifs
Frístunda- og menningarnefnd er ekki leyfisveitandi og ber því að vísa þeim hluta erindisins til skipulagsnefndar. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við skipulagsnefnd að Minjastofnun verði fengin að málinu og skeri úr um varðveislugildi byggingarinnar.