Frístunda- og menningarnefnd - 77. fundur
- 13.11.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 77
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Jóna Rut Jónsdóttirformaður
- Garðar Alfreðssonaðalmaður
- Þórunn Erlingsdóttiraðalmaður
- Bjarni Þórarinn Hallfreðssonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Bjarni Már Svavarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Íþróttamaður og íþróttakona ársins 2018
Verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur. Viðurkenningar fyrir íþróttamann og íþróttakonu ársins 2018 verða veittar í Gjánni 31. desember nk. Tilnefningar skulu hafa borist sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs Grindavíkur fyrir 15. desember. Valnefnd mun funda þriðjudaginn 18. desember.
2. Frístunda- og menningarsvið - Fjárhagsáætlun 2019
Fjárhagsáæltun fyrir frístunda- og menningarsvið vegna ársins 2019 lögð fram til kynningar.
3. Tendrun jólatrés 2018
Kveikt verður á jólatré fyrir framan Íþróttamiðstöðina laugardaginn 1. desember. Grindvíkingar eru hvattir til að fjölmenna.
4. Þrettándagleði 2019
Rætt um fyrirkomulag hátíðahalda vegna þrettándans 2019.
5. Útsýnispallur - Grindavíkurhöfn
Lagðar fram tvær hugmyndir að útsýnispalli við Kvíabryggju. Frístunda- og menningarnefnd hugnast frekar sú tillaga að samnýta svið og útsýnispall við Kvikuna. Mikilvægt er að hönnun taki mið af því umhverfi sem fyrir er á svæðinu. Nefndin óskar eftir því að fylgjast með framvindu málsins.
6. Gönguleið um sjávartengdar minjar
Lagt fram minnisblað um gönguleið um sjávartengdar minjar í Grindavík. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurnesja til að þróa hugmyndina á árinu 2019.
7. Verndarsvæði í byggð: Þórkötlustaðahverfi
Lagt er til að Þórkötlustaðahverfi verði verndarsvæði í byggð samkvæmt lögum nr. 87/2015. Drög að verndaráætlun lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd fagnar ítarlegri skýrslu og leggur til við bæjarstjórn að áætlunin verði samþykkt.