Frístunda- og menningarnefnd - 70.. fundur
- 08.02.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 70.
- Ritari: Björg Erlingsdóttir
Nefndarmenn
- Atli Geir Júlíussonaðalmaður
- Sigurður Enokssonaðalmaður
- Þórunn Alda Gylfadóttirformaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttiraðalmaður
- Björg Erlingsdóttirsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Kristín María Birgisdóttir
1. Golfklúbbur Grindavíkur: Íslandsmót 35+ í Grindavík
Nefndin fagnar því að íslandsmót 35+ verði haldið. Nefndin samþykkir stuðning við vinnuframlag vinnuskóla, aðgang að tjaldsvæði og sundlaug eftir samkomulagi við sviðsstjóra. Ósk um fjárstyrk þarf að sækja um til bæjarráðs og afnot af Gjánni til UMFG
2. Knattspyrnufélagið GG: ósk um styrk
Nefndin er jákvæð fyrir endurnýjun samnings og felur sviðsstjóra að ræða við GG. Nýr samningur verður lagður fyrir næsta fund nefndarinnar.
3. Vinabærinn Piteå: 40 ára afmæli vinabæjarsamstarfs
Nefndin fagnar frumkvæði vinarbæjarins Piteå. Sviðsstjóra falið að kanna hvað hægt er að gera á þessum tímamótum og athuga með fjármögnun.
4. Sjóarinn síkáti 2018: verkefnisáætlun
Áætlun kynnt, meiri áhersla verður lögð á laugardaginn, dagskrá föstudagskvölds einfölduð. Dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.
5. Bæjarlistamaður Grindavíkur 2018: Tilnefningar
Tilnefningar kynntar. Nefndin ákveður á næsta fundi sínum hver hlýtur verðlaunin.
6. Vinnuskólinn; skipulag 2018
Auglýst verður eftir störfum á næstu dögum.
7. Félagsmiðstöðin Þruman: Verkefnisáætlun 2018
Áætlun lögð fram
8. Bæjarfélagið Uniejów í Póllandi: Gagnkvæmar heimsóknir
Sagt frá fyrirhugaðri ferð til Uniejów
9. Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga: Hvatning til aðgerða
Hvatning sambandsins kynnt. Í þeirri vinnu sem framundan er við endurnýjun samnings Grindavíkurbæjar og UMFG og önnur íþróttafélög verður ákvæði um einelti og ofbeldi, kynbundna og kynferðislega áreitni sett í samningana.