Bæjarstjórn Grindavíkur - 601. fundur
- 27.10.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 601
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Guðbjörg Eyjólfsdóttir1. varaforseti
- Inga Fanney Rúnarsdóttir2. varaforseti
- Elínborg Ingvarsdóttirvaramaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Ólöf Rún Óladóttirvaramaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Georg Markanbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Ósk um breytingu á aðal- og deiliskipulagi - Afþreyingar- og ferðamannasvæði í og norðan Hópshverfis
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg, Guðjón, Hjálmar, Elínborg, Inga Rún, Inga Fanney, bæjarstjóri og Magnús Már.
Lögð er fram beiðni um heimild til að hefja vinnu við breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar afþreyingar- og ferðamannasvæðis norðan þéttbýlisins við Efrahóp.
Áformin fela meðal annars í sér gerð göngustígs, göngubrúar og bílastæðis norðan við Norðurhóp, ásamt aðstöðu til útivistar og fræðslu. Fyrirhugaðar breytingar ná til hluta íbúðarsvæðanna ÍB8 og ÍB11, þar sem til stendur að breyta landnotkun í afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF). Nánari afmörkun svæðisins, landnotkun og útfærsla verða ákveðin við skipulagsvinnuna. Jafnhliða aðalskipulagsbreytingu verður deiliskipulagi ofan Hópsbrautar breytt í framhaldi, sbr. bókun innviðanefndar á 20. fundi 19. október 2026.
Innviðanefnd samþykkir að hefja vinnu við breytingu á gildandi deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar afþreyingar- og ferðamannasvæðis við Efrahóp.
Jafnframt leggur nefndin til við bæjarstjórn að samþykkt verði að hefja vinnu við breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032 vegna sömu áforma.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela skipulags- og umhverfissviði að hefja vinnu við breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar afþreyingar- og ferðamannasvæðis norðan þéttbýlisins við Efrahóp.2. Végarður - Óveruleg breyting á aðalskipulagi (AF5)
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, bæjarstjóri, Guðbjörg, Elínborg og Magnús Már.
Lagður fram uppdráttur, dags. 12. október 2026, að breytingu á aðalskipulagi 2018-2032 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar Végarðs við Stamphólsveg. Bæjarstjórn heimilaði þann 29. september 2026 að hafin yrði vinna við breytingu á aðalskipulagi vegna verkefnisins.
Breytingin felur í sér að um 1,1 ha svæði, sem nú er skilgreint sem íþróttasvæði (ÍÞ1) og miðsvæði (M1), verði skilgreint sem nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF5). Markmið breytingarinnar er að skapa skipulagslegar forsendur fyrir uppbyggingu Végarðs sem sýningar-, fræðslu- og útivistarsvæðis.
Innviðanefnd fjallaði um tillöguna á 20. fundi sem haldinn var 19. október 2026. Nefndin telur breytinguna vera óverulega í skilningi 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Innviðanefnd mælir með samþykkt tillögunar og vísaði tillögunni til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi og að breytingin verði afgreidd sem óveruleg samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að annast lokafrágang málsins í samræmi við ákvæði laganna.3. Útgáfa byggingarleyfa og öryggi húsa í Grindavík
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón og Magnús Már og Guðbjörg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Lagt er fram minnisblað dags. 15.10.2026 um veitingu byggingarleyfa vegna viðgerða og endurbyggingar í Grindavíkurbæ, þar sem reifaðar eru tillögur um samræmt verklag við afgreiðslu umsókna um byggingarleyfi. Jafnhliða falli úr gildi bókun bæjarstjórnar frá 24. apríl 2024 um takmörkun á veitingu byggingarleyfa til viðgerða og endurbyggingar.
Innviðanefnd fjallaði um málið 19. október og leggur nefndin til að bókun bæjarstjórnar frá 24. apríl 2024 um takmörkun við veitingu byggingarleyfa vegna viðgerða á mannvirkjum verði felld úr gildi. Innviðanefnd leggur jafnframt til að byggingareftirlit og veiting byggingarleyfa til viðgerða á mannvirkjum sem orðið hafa fyrir tjóni vegna náttúruhamfara taki mið af verklagi sem lagt er til í minnisblaði dags. 15. október 2026. Innviðanefnd leggur áherslu á að samstarf við HMS og NTÍ hefjist sem fyrst. Nefndin verði upplýst reglulega um framvindu málsins.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að leita eftir samstarfi við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og Náttúruhamfaratryggingu með það að markmiði að tryggja rétta skráningu um ástand húsa sem orðið hafa fyrir tjóni og eftirlit með viðgerðum.
Ákvörðun um hvort bókun bæjarstjórnar frá 24. apríl 2024 verði felld úr gildi er frestað.4. Fjárhagsáætlun 2027-2030 - Grindavíkurbær og stofnanir
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri.
Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árin 2027-2030 er lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.5. Innviðanefnd - 20
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Guðbjörg, Inga Fanney, Magnús Már og bæjarstjóri.
Fundargerð 20. fundar innviðanefndar sem haldinn var 19. október 2026 er lögð fram til kynningar.6. Samfélagsnefnd - 16
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram til kynningar fundargerð 16. fundar samfélagsnefndar sem haldinn var 21. október 2026.7. Bæjarráð Grindavíkur - 1723
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Guðjón og Guðbjörg.
Fundargerð 1723. fundar bæjarráðs sem haldinn var 6. október 2026 er lögð fram til kynningar.8. Bæjarráð Grindavíkur - 1724
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg, bæjarstjóri, Hjálmar og Magnús Már.
Fundargerð 1724. fundar bæjarráðs sem haldinn var 13. október 2026 er lögð fram til kynningar.9. Bæjarráð Grindavíkur - 1725
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 1725. fundar bæjarráðs sem haldinn var 20. október 2026 er lögð fram til kynningar.10. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 99
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin 99. fundar afgreiðslunefndar skipulags- og byggingarmála er lögð fram til kynningar.11. Fundargerðir 2026 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Til máls tóku: Ásrún, Inga Fanney, Guðbjörg og Ólöf Rún.
Fundargerð 827. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 14. október 2026 er lögð fram til kynningar12. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2026
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg, Magnús Már, Inga Fanney, Hjálmar og Guðjón.
Fundargerð 327. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 15.09.2026 er lögð fram til kynningar.13. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2026
Til máls tóku: Ásrún, Magnús Már og bæjarstjóri.
Fundargerð 328. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 28.09.2026 er lögð fram til kynningar.14. Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 11.09.2026 er lögð fram til kynningar.15. Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 23.09.2026 er lögð fram til kynningar.16. Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 08.10.2026 er lögð fram til kynningar.17. Fundargerðir 2026 - Samtök orkusveitarfélaga
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg, Guðjón, bæjarstjóri og Hjálmar.
Fundargerð 97. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, dags. 07. september 2026 er lögð fram til kynningar.18. Fundargerðir 2026 - Þekkingarsetur Suðurnesja
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg, bæjarstjóri og Hjálmar.
Fundargerð 97. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, dags. 07. september 2026 er lögð fram til kynningar.