Bæjarstjórn Grindavíkur - 602. fundur
- 24.11.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 602
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Guðbjörg Eyjólfsdóttir1. varaforseti
- Inga Fanney Rúnarsdóttir2. varaforseti
- Þorleifur Ólafssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Ómar Davíð Ólafssonaðalmaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Georg Markanbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Rekstur slökkviliðs í Grindavík og öryggisgæsla í bænum
Til máls tóku: Ásrún og Guðbjörg.
Lögð fram til samþykktar drög að samningi um framlengingu þjónustu- og samstarfssamnings um rekstur Slökkviliðs Grindavíkur.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.2. Beiðni um viðauka - Bókasafn
Til máls tók: Ásrún.
Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 1.200.000 vegna bókakaupa og áskrifta.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina og að fjármögnun verði með lækkun að aðkeyptri þjónustu hjá Grunnskólanum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.3. Ráðning á sviðsstjóra hjá Grindavíkurbæ
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 600.000 kr. vegna ráðningar á sviðsstjóra hjá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina og að fjármögnun verði með lækkun á aðkeyptri þjónustu hjá Grunnskóla.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.4. Beiðni um viðauka - Félagsmiðstöðin Þruman
Til máls tók: Ásrún.
Vegna aukinna umsvifa í rekstri Þrumunnar er óskað eftir viðauka að upphæð kr. 7.760.000 vegna deildar nr. 06311 - Félagsmiðstöðin Þruman sem skiptist á launaliði kr. 4.260.000 og búnaðarkaup að fjárhæð 3.500.000 kr.
Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á aðkeyptri þjónustu í grunnskóla.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann.5. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum - Tekjuviðmið 2027
Til máls tóku: Ásrún og Guðbjörg.
Lögð fram tillaga að tekjuviðmiðum vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum ársins 2027. Tillagan er óbreytt viðmið frá fyrra ári.
Hækkun fyrir siðasta ár var skv. breytingu á launavísitölu þannig að hækkunin var vel rífleg og eru tekjumörkin nokkuð há miðað við önnur sveitarfélög.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða óbreytt tekjuviðmið.6. Ákvörðun um útsvarshlutfall á árinu 2027
Til máls tóku: Ásrún og Hjálmar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að útsvarhlutfall fyrir árið 2027 verði í lögbundnu hámarki sem er 14,97%.7. Fasteignagjöld 2027
Til máls tók: Ásrún.
Lagðar fram tillögur að álagningareglum fasteignagjalda fyrir árið 2027.
Framlögð tillaga er með óbreyttum álagningarreglurm frá fyrra ári.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.8. Fjárhagsáætlun SSS fyrir árið 2027
Til máls tóku: Ásrún og Guðbjörg.
Fjárhagsáætlun SSS fyrir árið 2027 er lögð fram til samþykktar.
Áætlunin hefur verið færð inn í áætlun Grindavíkurbæjar á viðeigandi lykla.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun SSS fyrir árið 2027.9. Fjárhagsáætlun 2027-2030 - Grindavíkurbær og stofnanir
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðbjörg, bæjarstjóri, Ómar Davíð, Hjálmar og Magnús Már.
Fjárhagsáætlun 2027-2030 fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir er lögð fram til síðari umræðu.
Áætlunin ber það með sér að starfsemi Grindavíkurbæjar muni aukast í skrefum yfir áætlunartímabilið.
Gert er ráð fyrir fjölgun íbúa, bæði þeim sem hafa lögheimili í Grindavík og íbúum með búsetu í Grindavík. Nú eru íbúar með lögheimili í Grindavík 914 og áætlað er að í búsetu í Grindavík séu um 530 aðilar. Í árslok 2030 er gert ráð fyrir 1.274 með lögheimili og 1.009 með búsetu í Grindavík.
Áætlun um tekjur af útsvari byggir á aukningu íbúa. Fasteignagjöld ársins 2027 verða með sömu forsendum og árið 2026. Ekki verða fasteignagjöld lögð á eignir Fasteignafélagsins Þórkötlu vegna undanþágu félagsins á fasteignagjöldum, sbr. lög 16/2024. Vegna þessarar undanþágu verður Grindavíkurbær af tekjum sem nema 315 milljónum króna. Þar af verður vatnsveitan af 28 milljónum króna og fráveitan af 91 milljón króna.
Gert er ráð fyrir að rekstarkostnaður aukist með aukinni starfsemi. Á áætlunartímabilinu mun ekki nást jafnvægi milli tekna og gjalda og gert er ráð fyrir rekstarhalla öll árin.
Áætluð rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum A- og B-hluta er þessi í þúsundum króna:
2027 2028 2029 2030
-172.360 -244.260 -429.672 -632.507
Ef ekki væri fyrir undaþágu Þórkötlu á fasteignagjöldum, væri enginn rekstarhalli árin 2027 og 2028. Auk þess væru bæði vatns- og fráveita hallalaus þau ár.
Verulega gengur á handbært fé Grindvíkurbæjar. Handbært fé í upphafi árs 2027, án samstarfsverkefna, er áætlað 4.908.177 þús. króna. Þar af er bótasjóður 2.042.491 þús. króna. Í árslok 2030 er gert ráð fyrir að handbært fé verði 3.076.725 þús. króna og bótasjóður tæmdur.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða fjárhagsáætlun 2027-2030 fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir.10. Fundargerðir 2026 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg, bæjarstjóri, Inga Fanney, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Hjálmar.
Fundargerð frá 828. fundi stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 11. nóvember 2026 er lögð fram til kynningar.11. Fundargerðir 2026 -Kalka sorpeyðingarstöð
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 582. stjórnarfundar Kölku dags. 03.11.2026 er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026
Til máls tóku: Ásrún, Guðbjörg, bæjarstjóri og Hjálmar.
Fundargerð 99. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga dags. 24.08.2026 er lögð fram til kynningar.13. Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026
Til máls tóku: Ásrún, Ómar Davíð, Guðbjörg og bæjarstjóri.
Fundargerð 100. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga dags. 21.09.2026 er lögð fram til kynningar.14. Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 101. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga dags. 02.10.2026 er lögð fram til kynningar.15. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2026
Til máls tóku: Ásrún og Hjálmar.
Fundargerð 329. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 02.11.2026 er lögð fram til kynningar.16. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2026
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón, bæjarstjóri, Magnús Már, Guðbjörg og Inga Fanney.
Fundargerð 330. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 05.11.2026 er lögð fram til kynningar.17. Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Til máls tóku: Ásrún, Magnús Már, Inga Fanney og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 30.10.2026 er lögð fram til kynningar.18. Bæjarráð Grindavíkur - 1726
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Ómar Davíð, Guðbjörg, Magnús Már og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.19. Bæjarráð Grindavíkur - 1727
Til máls tóku: Ásrún, Þorleifur, bæjarstjóri, Hjálmar og Guðbjörg.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.20. Bæjarráð Grindavíkur - 1728
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Magnús Már, Ómar Davíð, Inga Fanney, Guðbjörg og Guðjón.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.21. Samfélagsnefnd - 17
Til máls tóku: Ásrún og Inga Fanney.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.