Bæjarstjórn Grindavíkur - 570. fundur
- 03.06.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 14:55
- í Tollhúsi við Tryggvagötu
- Fundur nr. 570
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Gíslasonvaramaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskar forseti eftir að taka inn mál með afbrigðum sem 1. mál:
2406008 - Rafmagnstenging við Grindavík.
Samþykkt samhljóða.
1. Rafmagnstenging við Grindavík
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Gunnar Einarsson, frá Grindavíkurnefndinni og Guðjón Bragason, ráðgjafi.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Gunnar Einarsson, Hallfríður og Guðjón.
Grindavíkurnefndin átti fundi með Almannavörnum og HS veitum sunnudaginn 2. júní varðandi rafmagnsleysi í Grindavík. Tillaga HS veitna um bráðabirgða/neyðartenging var rædd, slík tenging getur staðið undir þeirri raforkunotkun sem hefur verið í Grindavík undanfarið. Enn á eftir að taka ákvarðanir um hvar og hvernig er hægt að koma á varanlegri og vonandi endanlegri tengingu milli flutningskerfis Landsnets (Svarstengis eða önnur leið) og Grindavíkur.
Grindavíkurnefndin telur brýnt að komið verði á rafmagn með lagningu strengs í samræmi við tillögur HS Veitna og sem fylgir með bókun þessari. Skv. því er unnt að koma á raftengingu á 6 dögum og er kostnaður áætlaður um 75 mkr.
Nefndin leggur til að framkvæmdin verði heimiluð og fjármögnuð úr ríkissjóði.
Bæjarstjórn tekur samhljóða undir framangreinda tillögu Grindavíkurnefndarinnar.2. Aðgerðaráætlun fyrir þjónustuteymi framkvæmdanefndar
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Gunnar Einarsson, frá Grindavíkurnefndinni, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Guðjón Bragason, ráðgjafi.
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Guðjón, Gunnar Einarsson, Hallfríður, Birgitta Hrund og bæjarstjóri.
Lögð fram aðgerðaráætlun og drög að samningi við MNR.
Í samræmi við 7. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ óskar nefndin eftir afstöðu sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar til aðgerðaráætlunar fyrir þjónustuteymi.
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við drög að samningi en felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að koma með ábendingar inn í aðgerðaáætlunina.3. Keilir, miðstöð vísinda og fræða - aðalfundur 2024
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund og bæjarstjóri.
Framhaldsaðalfundur Keilis verður 5. júní nk.
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að fara með atkvæði bæjarins á fundinum.4. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 81
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.