Bæjarstjórn Grindavíkur - 555. fundur
- 13.02.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 17:10
- í ráðhúsi Reykjavíkurborgar
- Fundur nr. 555
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hjálmar, Helga Dís, Birgitta Hrund, Birgitta Rán, Hallfríður, Guðjón Bragason, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið og Gunnar Már.
Farið yfir stöðu mála.2. Uppbygging varnargarða til varnar Grindavíkur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Helga Dís, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta Rán og Gunnar Már.
Skýrsla Verkís, "Varnir mikilvægra innviða - Samspil garða og Nesvegs", dags. 9. febrúar 2024 er lögð fram.3. Drög að lagafrumvarpi um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Guðjón Bragason sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Guðjón, Helga Dís, Birgitta Hrund, Hallfríður, Birgitta Rán, Gunnar Már, Hjálmar og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Drög að lagafrumvarpi um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík eru lögð fram.4. AUGLÝSING um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins.
Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að óska eftir framlengingu á auglýsingu 1217 frá 16. nóvember 2023 til að tryggja starfhæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.5. Víðihlíð, íbúðir aldraðra - uppgjör leigusamninga
Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Lagt er til að endurgreiða leigjendum í íbúðum aldraðra í Víðihlíð íbúðarétt eða leigutryggingu.
Samþykkt samhljóða.6. Lánasjóður sveitarfélaga - framboð til stjórnar
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Lögð fram auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 30. janúar 2024.7. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 942. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, þann 26.01.2024, er lögð fram til kynningar.