Bæjarstjórn Grindavíkur - 523. fundur
- 21.12.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 523
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaramaður
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Breyting á sveitarstjórnarlögum til að bregðast við neyðarástandi
Til máls tók: Hjálmar.
Vegna fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild til að ákveða að sveitarstjórnarmönnum sé heimilt að taka þátt í fundum sveitarstjórna, nefnda og ráða á vegum sveitarfélaga í gegnum fjarfundabúnað, þrátt fyrir að um annað sé getið í samþykktum þeirra. Heimildin gildir til 31. janúar 2022.
AUGLÝSING um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga, nr. 1273/2021, er lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlengingu til 31. janúar 2022.2. Breyting á barnaverndarlögum - Barnaverndarþjónusta
Til máls tóku: Hjálmar og Páll Valur.
Lögð fram til staðfestingar samþykkt bæjarráðs á tillögu félagsmálanefndar um að hefja viðræður við sveitarfélögin á Suðurnesjum um samstarf um umdæmisráð barnaverndar. Jafnframt þá tillögu að sækja um undanþágu frá reglum um lágmarksíbúafjölda að baki barnaverndarþjónustu á grundvelli fagþekkingar.
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.3. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Til máls tók: Hjálmar.
Fyrir liggur að kjósa nýjan aðalmann í almannavarnanefnd Grindavíkur. Tillaga er um að Einar Sveinn Jónsson verði aðalmaður í nefndinni í stað Ásmundar Jónssonar.
Samþykkt samhljóða.4. Spóahlíð 1 - umsókn um lóð
Til máls tók: Hjálmar.
Lóð úthlutuð til A1 húsa ehf. Fyrirvari var settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
A1 hús ehf. uppfylla ekki skilyrði fyrir lóðarveitingu sem koma fram í gr. 3.2.2 í reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun fyrir fjölbýlishúsalóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni ekki til A1 húsa ehf.5. Spóahlíð 3 - Umsókn um lóð
Til máls tók: Hjálmar.
Lóð úthlutuð til Braga Guðmundssonar ehf. Fyrirvari var settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Bragi Guðmundsson ehf. uppfyllir skilyrði fyrir lóðarveitingu sem koma fram í reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun fyrir fjölbýlishúsalóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni Spóahlíð 3 til Braga Guðmundssonar. ehf.6. Spóahlíð 5 - Umsókn um lóð
Til máls tók: Hjálmar.
Lóð úthlutuð til Grindin ehf. Fyrirvari var settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Grindin ehf. uppfyllir skilyrði fyrir lóðarveitingu sem koma fram í reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun fyrir fjölbýlishúsalóðir.
Bæjarstjórn samykkir samhljóða að úthluta lóðinni Spóahlíð 5 til Grindarinnar ehf.7. Spóahlíð 9 - Umsókn um lóð
Til máls tók: Hjálmar.
Lóð úthlutuð til Grindin ehf. Fyrirvari var settur á lóðarúthlutun um að umsækjandi uppfylli skilyrði reglna Grindavíkurbæjar um lóðarúthlutanir. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
Grindin ehf. uppfyllir skilyrði fyrir lóðarveitingu sem koma fram í reglum Grindavíkurbæjar um lóðaúthlutun fyrir fjölbýlishúsalóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni Spóahlíð 9 til Grindarinnar ehf.8. Hlíðarhverfi - Úthlutun lóða 1. áfangi
Til máls tók: Hjálmar.
Fundur afgreiðslunefndar byggingarmála fór fram 16. desember, þar sem einbýlis-, parhúsa- og raðhúsalóðum var úthlutað. Fjölbýlishúsalóðum var úthlutað á fundi skipulagsnefndar þann 16. desember.
Minnisblað byggingarfulltrúa um niðurstöðu úthlutunar einbýlis-, par- og raðhúsalóðum lagt fram til kynningar. Alls bárust sveitarfélaginu 422 umsóknir í lóðir í fyrsta áfanga Hlíðarhverfis.9. Umsókn um byggingarleyfi - Staðarhraun 19
Til máls tók: Hjálmar.
Grenndarkynningu á byggingarleyfisumsókn frá Kristjáni Þór Ásmundssyni vegna stækkunar á bílskúr við Staðarhraun 19 er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti á fundi þann 16. desember 2021. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulaganefndar.10. Breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins við Eyjabakka
Til máls tók: Hjálmar.
Tillaga að breyttu deiliskipulag við Eyjabakka lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna á fundi nr. 93 þann 16. desember 2021 með eftirfarandi breytingum:
- Skilmálar verði settir um frágang, afskermun og ásýnd á geymslusvæði á landfyllingu við Eyjabakka.
- Byggingarreitir við Bakkalág 17 og Hólmasund 1 nái saman.
- Byggingarreitir verði settir um spennistöðvar.
- Lóðanúmer sett á nýjar lóðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að senda tillögu að breyttu deiliskipulagi við Eyjabakka í auglýsingu í samræmi við 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.11. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2021
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Birgitta, Guðmundur, Helga Dís, Páll Valur, bæjarstjóri og Hallfríður.
Fundargerð 903. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. nóvember 2021 er lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2021
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Valur, Helga Dís og Hallfríður.
Fundargerð 904. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 10. desember 2021 er lögð fram til kynningar.13. Bæjarráð Grindavíkur - 1600
Til máls tóku: Hjálmar, Hallfríður, bæjarstjóri, Guðmundur, Páll Valur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Helga Dís, Birgitta og Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.14. Skipulagsnefnd - 93
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Valur, Guðmundur, Helga Dís, Hallfríður, Birgitta og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.15. Fræðslunefnd - 115
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Guðmundur, Birgitta, Helga Dís, bæjarstjóri, Hallfríður og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Frístunda- og menningarnefnd - 110
Til máls tóku: Hjálmar, Helga Dís, Birgitta, Hallfríður og Páll Valur.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 56
Til máls tóku: Hjálmar, Hallfríður, Guðmundur, bæjarstjóri, Birgitta, Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.