Bæjarstjórn Grindavíkur - 587. fundur
- 26.08.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 587
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti
- Birgitta H. Ramsay Káradóttiraðalmaður
- Hjálmar Hallgrímssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskar forseti eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem fyrsta mál:
2508023: Aðgerðaráætlun, framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavík, vegna fræðslumála og samþættrar þjónustu við börn skólaárið 2025-2026.
Samþykkt samhljóða.
1. Aðgerðaráætlun, framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavík, vegna fræðslumála og samþættrar þjónustu við börn skólaárið 2025-2026
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar, Hallfríður, Birgitta Hrund, Birgitta Rán, Guðjón, Gunnar Már, Inga Fanney, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Aðgerðaáætlun framkvæmdanefndar er lögð fram.
Bæjarstjórn telur eðlilegt að samráð skuli haft um fyrirkomulag fræðslumála og samþættrar þjónustu við börn þar sem kostnaður af málaflokknum leggst á Grindavíkurbæ.
Bæjarstjórn óskar eftir að fá fund með framkvæmdanefndinni til að fara yfir aðgerðaáætlunina.2. Sóknaráætlun Suðurnesja - Stuðningsaðgerðir í þágu atvinnulífs í Grindavík
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Hallfríður, Inga Fanney og Birgitta Hrund.
Nýlega er liðinn umsóknarfrestur um fjárstuðning til smærri atvinnurekenda í Grindavík og úthlutun er lokið. Stuðningurinn er einkum ætlaður einyrkjum og smærri fyrirtækjum sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, eru í rekstri og hafa a.m.k. einn starfsmann á launaskrá og veltu undir 500 milljónum króna. Fjármunum skal varið til verkefna sem snúa m.a. að markaðssetningu, vöruþróun og nýsköpun. Styrkjum er hvorki ætlað að kaupa upp eignir né að greiða niður skuldir. Um er að ræða sérstakt átaksverkefni í Sóknaráætlun Suðurnesja. Heildarframlag ríkisins til þessarar aukaúthlutunar er 50 m.kr.3. Alþjóðasamtök eldfjallafræðinga - ráðstefna
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Guðjón, Gunnar Már og Birgitta Hrund.
Lagt fram erindi frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, dags. 11. ágúst sl. þar sem
spurt er hvort Grindavíkurbær væri til í að taka þátt undirbúningi og að senda inn tillögu um að fá ráðstefnu Alþjóðasamtaka eldfjallafræðinga hingað til lands.
Bæjarstjórn tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að afla frekari upplýsinga.4. Svæðisskipulag Suðurnesja - Tillaga
Til máls tóku: Ásrún og Guðjón.
Svæðisskipulagsnefnd hefur samþykkt að senda endanlega tillögu að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2024-2040 til samþykktar sveitarstjórna á Suðurnesjum, skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og utanríkisráðuneytisins/Landhelgisgæslunnar, skv. 3 mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var borin undir innviðanefnd til kynningar áður en hún er lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Innviðanefnd mælir með því að bæjarstjórn samþykki tillöguna.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.5. Krafa um endurheimt líkamsleifa
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar, Guðjón, Inga Fanney, Gunnar Már og Birgitta Hrund.
Bæjarstjórn lýsir miklum skilningi á erindinu og tekur undir með bréfritara að það er þungbært að fá ekki lúkningu í málið. Bæjarstjórn tekur fram að málið er ekki á forræði Grindavíkurbæjar en bæjarstjórn lýsir vilja til að koma að málinu með þar til bærum aðilum.6. Samþykkt um breytingu á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar nr. 530-2022
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Hallfríður, Birgitta Rán, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Hjálmar og Gunnar Már.
Lögð fram drög að breytingu á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar til fyrri umræðu.
Bæjarstjórn vísar breytingu á samþykktinni til síðari umræðu.7. Sveitarstjórnarkosningar 2026
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gunnar Már, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Rán og Inga Fanney.
Lögð fram lögfræðileg álitsgerð um tilgreind álitaefni vegna kosningaréttar og kjörgengis í sveitarstjórnarkosningum í Grindavíkurbæ vorið 2026.
Bæjarstjórn telur álitsgerðina vera skýra um helstu álitaefni um framkvæmd sveitarstjórnarkosninga í Grindavík. Bæjarstjórn telur best að kosningar fari fram í Grindavík samkvæmt óbreyttum lögum og að ekki séu sett sérlög um kosningarétt og kjörgengi í Grindavíkurbæ.8. Innviðanefnd - breyting á varamanni
Til máls tóku: Ásrún og Inga Fanney.
Tillaga frá Rödd unga fólksins um breytingu á varamanni í Innviðanefnd:
Eva Rún Barðadóttir taki við sem varamaður í stað Ragnheiðar Eiríksdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.9. Stjórn Kölku - breyting á varamanni
Til máls tóku: Ásrún og Inga Fanney.
Tillaga frá Rödd unga fólksins um breytingu á varamanni í stjórn Kölku:
Eva Rún Barðadóttir taki við sem varamaður í stað Helgu Dísar Jakobsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.10. Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar og Hallfríður.
Fundargerð 814. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 13. ágúst 2025 er lögð fram til kynningar.11. Fundargerðir og gögn fjallskilanefndar 2025
Til máls tók: Ásrún.
Réttardagur verður sunnudaginn 21. september nk.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.12. Bæjarráð Grindavíkur - 1683
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.13. Bæjarráð Grindavíkur - 1684
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hjálmar, Guðjón, Birgitta Rán og Inga Fanney.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.14. Bæjarráð Grindavíkur - 1685
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hjálmar og Hallfríður.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.15. Bæjarráð Grindavíkur - 1686
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Bæjarráð Grindavíkur - 1687
Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar, Hallfríður, Gunnar Már, Birgitta Rán, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Inga Fanney.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.17. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 88
Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.18. Innviðanefnd - 9
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.